Friday, November 28, 2008

Föstudaginn 18. janúar, 2008 - Minningargreinar

Úlfur Ragnarsson

Úlfur Ragnarsson læknir fæddist í Reykjavík 29. september 1923. Hann andaðist á Landspítalanum í Fossvogi 10. janúar síðastliðinn. Hann var sonur Ragnars Ásgeirssonar garðyrkjuráðunautar og Grethe Harne Ásgeirsson húsfreyju.

Úlfur Ragnarsson læknir fæddist í Reykjavík 29. september 1923. Hann andaðist á Landspítalanum í Fossvogi 10. janúar síðastliðinn. Hann var sonur Ragnars Ásgeirssonar garðyrkjuráðunautar og Grethe Harne Ásgeirsson húsfreyju. Hann ólst upp í Reykjavík og síðar að Laugarvatni. Úlfur átti 4 systkini: Evu, Sigrúnu og Hauk.

Hinn 24. desember 1944 kvæntist Úlfur Ástu Guðvarðardóttur, f. 29.11.1923. Foreldrar hennar voru María Ásgrímsdóttir húsfreyja og Guðvarður Pétursson bóndi. Þau eiga fimm dætur, þær eru: 1) Aðalheiður, f. 1944. Fyrri eiginmaður hennar var Steinarr Richard Elíasson, f. 1937 d.1965. Sonur þeirra er a) Ragnar Örn, kvæntur Sólrúnu W. Kamban, þau eiga þrjú börn. Seinni eiginmaður Aðalheiðar er Eggert Jónsson, f. 1939. Börn þeirra eru: b) Úlfur, kvæntur Díönu Jósefsdóttur, þau eiga einn son. Fyrir átti Úlfur dóttur. c) Elísabet, í sambúð með Jóhannesi Donaldsson, þau eiga tvö börn. d) Aðalheiður, hún á eina dóttur. e) Haukur, í sambúð með Bryndísi Steindórsdóttur, þau eiga eina dóttur. Fyrir átti Haukur dóttur. Dætur Eggerts af fyrra hjónabandi, stjúpdætur Aðalheiðar, eru: Kolbrún, Heiða Lára og Guðrún.

2) Lilja María, f. 1947. Gift Georg Vilberg Halldórssyni, f. 1941. Börn þeirra eru: a) Ásta Sólveig, gift Ríkharði Egilssyni. b) Árni Ragnar. c)Ingi Rúnar, í sambúð með Aðalheiði Ingimundardóttur, þau eiga 2 börn.

3) Greta Björg, f. 1951, var gift Kristjáni Eysteinssyni, f. 1951. Þau skildu. Synir þeirra eru Eysteinn, í sambúð með Sólveigu Maríu Jörgensen, og Úlfur.

4) Sigrún Ragna, f. 1956, sambýlismaður var Hörður Gunnarsson, f. 1945. Þau slitu samvistum. Börn þeirra eru: a) Vala Björt, gift Jóhannesi Reykjalín Þórssyni, þau eiga 2 börn. b) Ásta Hrönn, í sambúð með Þorsteini Orra Magnússyni. c) Gunnar, í sambúð með Hrafnhildi Jónsdóttur, þau eiga einn son. Síðari maður Rögnu var Örnólfur Eiríksson, f. 1953. Þau skildu. Börn þeirra eru: d) Eiríkur Björn og e) Úlfhildur Ragna.

5) Eva Sólveig, f. 1959, sambýlismaður var Jón Stefánsson, f. 1960. Þau slitu samvistum. Börn þeirra eru: a) Jón Stefán, í sambúð með Sigurlínu Stefánsdóttur, þau eiga einn son. b) Þorgerður Kristín. Eiginmaður Evu er Einar Ingi Einarsson, f. 1951.

Úlfur varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1943 og lauk læknaprófi frá Háskóla Íslands 1950. Hann fékk almennt lækningaleyfi hér á landi 1952. Úlfur fór nokkrum sinnum til náms erlendis, m.a. til Þýskalands og Sviss til að kynna sér baðlækningar og baðlækningastofnanir fyrir NLFÍ. Hann nam við sálfræðistofnun CG Jung í Zürich og á deild fyrir drykkjusjúka á sjúkrahúsi í Sussex á Englandi. Þá hóf Úlfur nám í kínverskum nálastungulækningum hjá dr. J. Gleditsch í München 1981 og hélt því áfram næstu ár.

Úlfur starfaði sem héraðslæknir víða um land, sem aðstoðarlæknir á Kleppsspítala og sem læknir Heilsuhælis NLFÍ í Hveragerði. Hann var yfirlæknir á Kristnesspítala 1975-1984. Úlfur var frumkvöðull hinnar kínversku nálastunguaðferðar hér á landi.

Í tómstundum sínum fékkst Úlfur við málaralist og ljóðagerð og sýndi málverk sín á nokkrum einkasýningum.

Úlfur verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 11.

Kæri afi, nú ert þú farinn frá okkur og mun ég sakna þín afar sárt. Við áttum saman margar frábærar stundir í lífinu og þú ert sá maður sem ég hef ætíð litið á sem fyrirmynd. Ég mun alltaf muna eftir flugdrekaferðunum, bátssiglingunum, snjóhúsunum, útilegunum og sumarbústaðaferðunum með þér. Þarna er samt bara nefndur svo lítill hluti þess sem þið amma gerðuð fyrir mig þegar ég heimsótti ykkur.

Mér þykir sérstaklega gaman að hann Aron Geir, sonur minn, hafi fæðst á þínum afmælisdegi og að þú hafir náð að sjá hann í þetta eina skipti sem þið hittust þegar við komum í heimsókn rétt fyrir jólin.

Eins og ég sagði þér og ömmu, þá ætla ég svo sannarlega að ala hann upp þannig að hann verði sem líkastur þér. Í það minnsta mun ég svo sannarlega gæta þess að hann viti hver þú ert og hann mun heldur betur fá að heyra sögur af því sem ég og þú gerðum saman. Þú munt að sjálfsögðu fylgjast með okkur, það veit ég.

Kveðja,

Jón Stefán.

Í dag er fjölhæfur snillingur kvaddur: Læknir, listmálari, hugsjónamaður, en ekki hvað sízt – „mannvinur“.

Læknir – eins og áður gerðist í dreifbýlinu, var allan sólarhringinn á vakt, hafði engum öðrum til að dreifa – alltaf reiðubúinn, þegar kallið kæmi, burt séð frá veðri, vindum, flaumi farvatna, sem fyrr á tíð voru jafnan óbrúuð. En lækninn mátti ekkert hindra, þegar mikið lá við, jafnvel lífið sjálft, sbr. ljóðið „Sveinn Pálsson og Kópur“ eftir Grím Thomsen, kvæði, sem ég lærði smádrengur, og gagntók mig til innstu inna. Þar fannst mér ég sjá sanna mynd af sönnum lækni – lækni, sem ekki lét náttúruhamfarir hefta för sína, kallaður til að bjarga lífi barns og móður eins og segir í næst seinasta erindinu:

Úr barns og móður bætti hann þraut,

blessun upp því skar hann.

Önnur laun hann engin hlaut,

ánægður þó var hann.

(kynnið ykkur kvæðið).

Í þessu ljóði finn ég hugsjónalækninn Úlfar Ragnarsson, sem fús var til þjónustu í strjálbýlinu fremur en að hjúfra sig í hægindum þéttbýlisins.

Vafalítið hefur hann oft þurft að þreyta fang við veðráttuna, því þegar ófærðin var hvað mest, ofurauki mönnum og skepnum, brá hann skíðunum sínum fyrir sig – fór í læknisvitjanir á skíðum! Hér mætti því réttilega minnast hans sem „skíðalæknisins“. – Skyldi þetta vera einsdæmi í læknasögu landsins? Mikla aðdáun vakti þetta mér.

Já, sjálfsagt hefur Úlfur bjargað mörgu lífinu, sem annars hefði jafnvel ekki litið ljós dagsins, og í örlæti sínu, því örlátur var hann og óspar á sjálfan sig, fengið álíka há laun og Sveinn Pálsson – ánægjuna af að þjóna og lækna.

Með okkur var náin, kær vinátta og alltaf auðgaði ljúf návist hans. Dagfarslega var hann hæverzkur, prúður og lét ekki mikið yfir sér, en fróðleiksbrunnur vel lesins og hámenntaðs manns.

En nú er hann farinn. Blessuð veri minning hans með þakklæti fyrir allt, sem hann var samfélagi okkar.

Kæra Ásta og aðrir ástvinir. Við sendum ykkur hjartkæra samúð. Guð blessi ykkur öll.

Sólveig, Jón Hjörleifur, börn, tengda- og barnabörn.

Úlfur Ragnarsson hefur kvatt þetta jarðlíf. Það eru forréttindi að hafa fengið að þekkja og umgangast mann eins og hann. Það eru að verða tveir áratugir síðan okkar kynni hófust og sá tími skapaði okkur lífsfyllingu og lífssýn sem ekkert okkar hefði viljað fara á mis við. Það er eins og sumt í lífinu sé fyrirskrifað. Þannig var það með kynni okkar af þeim hjónum Úlfi og Ástu. Við vitum ekki hvort eitthvað í lífinu er tilviljun en það að við kynntumst Úlfi virðist hafa verið skrifað í skýin. Strax frá fyrsta degi var eins og við hefðumst alltaf þekkst.

Úlfur var þessi hlýi umvefjandi leiðtogi sem strax var farinn að fræða og gefa af sinni reynslu og þekkingu í andlegum málum. Hann hreif alla í kringum sig í ferðalag um ókunnar lendur hugans og hið óræða og ókannaða. Við áttum einnig því láni að fagna að ferðast með honum og Ástu, sem lifir mann sinn, um víðlendur þessa heims og þar var hann ekki síður vel að sér og fræðandi. Við í litla hugleiðsluhópnum þökkum honum kærlega fyrir alla handleiðsluna og lífsspekina sem hann gaf okkur. Kynnin við Úlf hafa gert líf okkar innihaldsríkara og gefið okkur þá vissu að ekki er allt sem sýnist. Við vitum að Úlfur mun halda áfram að miðla af visku og þekkingu sinni hvar sem hann fer.

Við vottum Ástu og fjölskyldu okkar dýpstu samúð.

Anna og Guðbjartur, Baldur

og Þórey, Hjördís og Gísli.