Saturday, August 19, 2006

Minnie Leósdóttir

Laugardaginn 15. júní, 2002 - Minningargreinar

MINNÝ GUNNLAUG LEÓSDÓTTIR

Minný Gunnlaug Leósdóttir hjúkrunarkona fæddist á Siglufirði 24. júlí 1934. Hún lést á Landspítala í Fossvogi 3. júní síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Leó Jónsson, f. 7. sept. 1909, d. 31. jan. 1996, og Sóley Gunnlaugsdóttir, f. 19. ágúst 1908, d. 31.

MINNÝ GUNNLAUG LEÓSDÓTTIR - mynd



Minný Gunnlaug Leósdóttir hjúkrunarkona fæddist á Siglufirði 24. júlí 1934. Hún lést á Landspítala í Fossvogi 3. júní síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Leó Jónsson, f. 7. sept. 1909, d. 31. jan. 1996, og Sóley Gunnlaugsdóttir, f. 19. ágúst 1908, d. 31. des. 1994. Bróðir hennar var Gunnar Guðfinnur Jón Leósson, f. 26. jan. 1933, d. 27. mars 1994.

Hinn 1. des. 1963 giftist Minný Eiríki Hauki Stefánssyni, f. 24. ág. 1933, d. 17. júlí 1992. Foreldrar hans voru Stefán Vagnsson og Helga Jónsdóttir. Sonur Minnýjar frá fyrri sambúð er Leó Reynir Ólason, f. 9. nóv. 1955. Sambýliskona hans er Margrét Ingibjörg Jónsdóttir frá Þingeyri, f. 11. febr. 1955. Börn þeirra eru Gunnlaugur Óli Leósson, f. 8. júlí 1988, og Halldóra Minný Leósdóttir, f. 9. nóv. 1990. Börn Leós frá fyrra hjónabandi eru Leó Ingi Leósson, f. 19. ág. 1977, Ingvar Már Leósson, f. 15. mars 1980, og Haukur Þór Leósson, f. 19. mars 1982. Fósturbörn Leós eru Maríanna Kr. Leósdóttir, f. 25. maí 1973, Jón Hrafnkell Árnason, f. 5. júlí 1975, og Svandís Elísa Sveinsdóttir, f. 4. jan. 1981. Dóttir Minnýjar, einnig frá fyrri sambúð, er Sæunn Óladóttir, f. 13. des. 1958. Eiginmaður hennar er Viðar Daníelsson frá Saurbæ í Eyjafjarðarsveit, f. 3. apríl 1942. Börn þeirra eru Arnar Ingi Viðarsson, f. 7. maí 1984, Anna Sóley Viðarsdóttir, f. 3. nóv. 1986, og Ásdís María Viðarsdóttir, f. 24. ág. 1993.

Minný útskrifaðist frá Hjúkrunarkvennaskóla Íslands 6. maí 1962 og starfaði nær óslitið síðan sem hjúkrunarkona á ýmsum sjúkrastofnunum allt til dauðadags en lengst af á Sjúkrahúsi Sauðárkróks.

Útför Minnýjar verður gerð frá Sauðárkrókskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14.

Vængjuð er sú farþrá, sem vorið hefur kallað á vit sín töfraglæst. Í fjarlægð geta lokist upp hlið að óskahöllum, sem heima voru læst. Það er draumamannsins fley, sem í festar hefur togað, og farmurinn er þrá. Hvort flytjast allir burtu, sem fegri drauma eiga, en fólkið kringum þá? Og þú, sem hefur kjark til að brjóta af þér böndin, eins og býður draumur þinn. Ef örlög skyldu draga sín dyratjöld til hliðar, og draumalandið opnast, - gakk þá inn. Í kvöldroðann hann siglir. Við kveðjum hann í fjöru. Í kvöld fá draumar ræst. Þann væng fær enginn stöðvað, sem vorið hefur kallað á vit sín töfraglæst. (Kristján frá Djúpalæk.)

Fyrsta minningin um hana mömmu stendur mér ennþá ljóslifandi fyrir hugskotssjónum eins og atburðurinn hefði átt sér stað í gær. Mér hafði verið sagt að móðir mín, sem var búin að vera í skóla í Reykjavík, kæmi í bæinn með rútunni í kvöld, en ég, sem var bara þriggja ára, skildi þetta ekki alveg. Ég átti heima hjá afa og ömmu, í húsinu þeirra á brekkunni heima á Siglufirði, og var sæll og glaður með það. Um kvöldið fór ég að venju í háttinn um áttaleytið, en seinna um kvöldið rumskaði ég við að glaðlegar raddir rufu kvöldkyrrðina. Fyrst úti á pallinum fyrir utan húsið, en síðan bárust þær inn í eldhús. Ég áttaði mig á því að þessi kona sem amma mín hafði sagt mér frá fyrr um daginn væri sennilega komin í hús og varð nú forvitnin feimninni yfirsterkari. Ég læddist fram ganginn og gægðist inn um dyragættina. Þarna sat liðlega tvítug kona sem geislaði af lífsgleði og var að segja frá ferðalaginu norður. Skyndilega leit hún upp og horfði á litla manninn í eldhúsdyrunum. Ég starði um stund á móti, og sá strax að þetta hlaut að vera langfallegasta mamman í öllum heiminum. Svo var hún líka svo góð, því hún dró fallegan pakka upp úr ferðatöskunni og rétti mér, og hann var bæði með merkispjaldi og slaufu.

Hún ákvað ung hvað hún vildi læra og gera síðan að lífsstarfi sínu. Hún vildi verða hjúkrunarkona sem og varð. Fyrst starfaði hún á Grund í Reykjavík en fljótlega eftir að námi lauk fluttist hún norður á Sauðárkrók þar sem hún hugðist staldra við í stuttan tíma á sjúkrahúsinu þar. Árin á Króknum urðu þó á fjórða tuginn, því þar kynntist hún Hauki Stefánssyni sem varð hennar lífsförunautur. Þegar flett er í gömlum myndaalbúmum fjölskyldunnar rifjast upp og sést hve þau voru glæsilegt par, en Haukur lést langt fyrir aldur fram aðeins 58 ára að aldri. Það var síðan í maí árið 2000 að sá er þetta ritar fékk lánaðan stóran sendiferðabíl og ók norður í land til að sækja hana og alla hennar búslóð. Nú skyldi hefjast nýr kapítuli á nýjum stað og með nýjum áherslum. Hún hafði fest kaup á nýrri íbúð í Reykjavík og vildi gefa sér góðan tíma til að koma sér vel fyrir. Nú tveimur árum eftir flutninginn suður, þegar hún var búin að byggja upp fallegt heimili og hvíla sig svolítið, vildi hún fara aftur út á vinnumarkaðinn og sinna því starfi örlítið lengur, sem hefur verið hennar köllun í lífinu. Hún réð sig til starfa á Hrafnistu við Norðurbrún og var búin að starfa þar í um það bil mánuð, þegar kallið mikla kom. Því kalli verðum við öll að svara og fáum um þá stund engu ráðið hvort sem við erum tilbúin eður ei. Hvort sem við teljum vitjunartímann sanngjarnan eða ótímabæran. Hvort sem við höfum lokið okkar starfi eða eigum eftir að ráðstafa nokkru betur. Ég kveð þig móðir mín með söknuði, en veit að þeir okkar nánustu sem þegar hafa gengið götuna sem þú hefur nú einnig gengið munu taka þér opnum örmum í fögnuði þar sem hin þekkta braut jarðlífsins endar. Einnig allir þeir sem þú hefur annast í starfi þínu af mikilli alúð, en eru ekki lengur meðal vor. Ég veit að allir þeir munu vilja þakka þér og rétta þér hönd sína þar sem ljósið skín skærar en vér dauðlegir þekkjum. Þegar ég stóð á tröppum sjúkrahússins í Fossvoginum eftir að þín stóra stund hafði upp runnið leit ég sólina sem hellti geislum sínum yfir okkur öll á þessu fallega júnísíðdegi, svo og á fjallahringinn í fjarska sem sveipaður var ljósbláum, sumarlegum yndisþokka. Öll þessi jarðarinnar fegurð var í hrópandi ósamræmi við það sem hafði verið að gerast. En þó að hugur minn hafi myrkvast um stund og ég þurfi að gefa mér tíma til að skilja hvað hinn mikli alheimsarkitekt var að hugsa þegar hann burtkallaði þig, þá fékkst þú að minnsta kosti það besta ferðaveður sem hugsast getur er þú lagðir upp í ferð þína til þeirra hæstu hæða sem um getur.

Leó R. Ólason.

Elsku Minný amma.

Vart get ég lýst því með orðum hve erfitt ég átti með að trúa þeim fréttum að þú værir dáin, þegar pabbi hringdi í mig og sagði mér þessi tíðindi. Sumt getur verið erfitt að skilja, og þetta er eitt af því. En þegar áttum er náð á ný koma minningarnar um ljúfu stundirnar fram í hugann. Stundirnar sem ég átti með þér og Hauki afa frá því að ég var lítill og kom í heimsókn sumar eftir sumar. Alltaf þegar ég fór svo aftur heim á Sigló gat ég farið að hlakka til þess að koma aftur og dvelja um tíma. Ég var það á heimilinu sem allt snerist um, og það var séð til þess að dvölin væri nánast ein samfelld skemmtun frá morgni til kvölds. Þegar ég kom svangur inn var slegið upp stórveislu sem þið kölluðuð matmálstíma. Ég var sendur á reiðnámskeið og það var farið í bíltúra og heimsóknir í sveitina á Grænumýri og Flugumýri. En eftir að afi dó og þú fluttir suður urðu samskipti okkar minni. Jafnvel eftir að ég var fluttur í nágrenni við þig og mér finnst sárt að finna fyrir vanmætti mínum til að bæta úr því.

En ég veit að þú ert komin á góðan og fallegan stað. Ég veit að Haukur afi mun bíða þín og taka þér brosandi opnum örmum og þið munuð eiga saman margar góðar stundir sem ykkur entist ekki tími til að upplifa á jarðvistardögum ykkar.

En elsku amma mín, minningin um þig á eftir að lifa með mér að eilífu.

Hinsta kveðja,

Leó Ingi Leósson.

Elsku amma mín. Þegar ég sendi þér þessar mínar síðustu línur rifjast svo margt upp sem fyllir hugann söknuði vegna þeirra góðu stunda sem við áttum saman og þér eru tengdar. Þó að þær séu löngu liðnar munu þær eiga sinn stað í huga mér um ókomin ár. Þegar ég var lítill var oft stansað á Króknum þegar við í Siglufjarðarfjölskyldunni áttum leið um Skagafjörð. Þegar inn var komið hljóp ég alltaf beint í ruggustólinn sem var við eldhúsdyrnar. Ég var fljótur að ná mér á góða ferð í þessu skemmtilega leiktæki og þú sagðir aldrei neitt við ólátunum í mér, en síðar áttaði ég mig á því að líklega hefði ég verið talinn vera kominn yfir strikið ef einhver önnur en þú hefðir átt í hlut. Rokkurinn í stofunni sem enginn mátti snerta var líka forvitnilegt og skemmtilegt tæki í alla staði. Það var hægt með svolítilli lagni að laumast að honum og snúa stóra hjólinu ofur varlega án þess að það vekti allt of mikla athygli. Ég þurfti á þessum árum alltaf að fikta svolítið í þeim hlutum sem ég skildi ekki alveg hvernig virkuðu. Einhvern tímann var ég nú víst staðinn að verki en var samt ekkert skammaður. Það hefði nú líklega verið gert ef einhver önnur en þú hefðir átt í hlut. Þú sagðir mér seinna frá vasanum sem brotnaði þegar ég var pínulítill. Þú varðst í fyrstu bálreið en þegar ég í gleði minni klappaði saman höndum af kæti af því það var svo gaman að vera hjá ömmu bráðnaðir þú alveg svo ekkert varð úr skömmunum.

Ég fékk einu sinni að labba aleinn niður í Vöku til Hauks. Þú varst í símasambandi við hann á meðan. Það var spennandi fyrir sjö ára strák í heimsókn hjá ömmu sinni að ferðast alla þessa leið á eigin vegum í bæ sem hann var að mestu ókunnugur í.

Svona voru samverustundirnar okkar á Króknum í þá daga, en hinar ljúfu minningar um þær munu lifa með mér alla tíð. Þökk sé þér.

Ingvar Már Leósson.

Þegar kemur að kveðjustund sem þessari með svona skjótum hætti og án nokkurs aðdraganda, eða jafnvel án nokkurrar sýnilegrar ástæðu, rennur það upp fyrir mér að ég var alls ekki undir þau tíðindi búinn sem mér bárust. Þegar ég hugsa til þín fara minningabrot þar sem þú komst við sögu að leita á huga minn. Frá því að ég var lítill strákur á Siglufirði, sem kom í heimsókn á Víðigrundina. Frá því að ég var á unglingsárum í fjölbraut á Króknum, og frá því að ég átti erindi á Krókinn vegna áhuga míns á knattspyrnu sem mig langar nú á þessari stundu að rifja ofurlítið upp. Þegar ég var sjö ára gamall kom ég til að spila á Króksmótinu með KS, og var þá markvörður í 7. flokki. Ég kom í þetta sinn ekki til að heimsækja þig, en þú tókst samt eins vel á móti mér og nokkur amma getur mögulega gert. Þú mættir ávallt hress og kát á hvern einasta leik og hrópaðir allra manna hæst: ÁFRAM KS! Þó svo að þú værir búin að búa á Sauðárkróki öll þessi ár. Það fannst mér svolítið skrýtið þá. Svo stóðstu alltaf við markið mitt og stappaðir í mig stálinu og ég held að það hafi verið aðalástæða þess að ég fékk aðeins eitt mark á mig á öllu mótinu. Kannski hefurðu litið ofurlítið í aðra átt þegar þetta eina mark var skorað. Þarna var ég að keppa í allra fyrsta skipti og þarna fékk ég minn óskabyr. Þökk sé þér amma. Ég á ljósmynd sem var tekin við markið okkar þar sem það augnablik var fangað sem aldrei mun gleymast. Hana mun ég varðveita og hugsa til þín um ókomin ár í hvert og eitt einasta sinn sem ég lít hana augum. Einhvern veginn þannig hefurðu alltaf verið í mínum huga og um alla framtíð mun ég minnast þín með söknuði.

Haukur Þór Leósson.

Þegar ég hugsa til þín á þessari stundu kemur svo margt fram í hugann. Það á það sameiginlegt að vera jákvætt, gott og skemmtilegt eins og þær stundir voru allar sem við áttum saman.

Einu sinni þegar ég kom á Krókinn í heimsókn hef ég verið fimm eða sex ára gömul.

Þá fékk ég að fara í prinsessuleik fyrir framan kvikmyndastjörnuspegilinn. Þú lánaðir mér varalitinn þinn og ilmvatnið og sýndir mér hvernig best væri að bera sig að við að nota þetta allt. Ég fékk að gera allt sjálf og mér fannst ég vera orðin fín dama eins og ég leit út eftir alla snyrtinguna. Á eftir bauðstu mér í kaffi í eldhúsinu þar sem þú spjallaðir við mig eins og ég væri fullorðin vinkona þín og lagðir á borð eins og þú værir að fá virðulega frú í heimsókn. Þetta var upplifun sem aldrei gleymist og þarna ákvað ég að þegar ég yrði stór ætlaði ég að verða svona flott og elegant eins og þú.

Næst þegar við hittumst verð ég nú sennilega með minn eigin varalit.

Ég kveð þig með sárum söknuði.

Maríanna Kr. Leósdóttir.

Í dag kveðjum við frænku okkar Minný Gunnlaugu Leósdóttur.

Það er bjartasti tími ársins og fegurð lífsins er alls staðar í kringum okkur þegar þú kveður þetta líf.

Lífssiglingu þinni er lokið, skip þitt er komið að landi.

Það lét úr höfn á Siglufirði, þar sem þú ólst upp hjá foreldrum þínum þeim Sóleyju Gunnlaugsdóttur og Leó Jónssyni á Hverfisgötu 11, umvafin ást og foreldrakærleika. Minný vildi sjá meira, vita meira en hún hafði tækifæri til á Siglufirði og sigldi skipi sínu til Reykjavíkur. Hóf nám í Hjúkrunarskóla Íslands og lauk námi þaðan 1962. Hjúkrun hefur alltaf verið hennar aðalsmerki, mannúð og umhyggja fyrir öðrum var hennar lífsstíll. Á þessum árum eignaðist Minný tvö börn með sambýlismanni sínum Ólafi Hjálmarssyni lækni, þau Sæunni og Leó Reyni.

Minný var skipstjóri á sínu skipi og sigldi því nú til Sauðárkróks og hóf hjúkrunarstörf á sjúkrahúsinu þar. Sjúkrahúsið varð hennar annað heimili og þar eignaðist hún marga góða vini, jafnt starfsfélaga sem sjúklinga.

Þegar Minný talaði um vini sína þar kom sérstakur tónn hjá henni sem innihélt bæði hlýju og kímni.

Á Sauðárkróki hitti Minný eiginmann sinn Hauk Stefánsson málarameistara. Reistu þau sér yndislegt hús á Víðigrund 13, þar sem þau bjuggu alla tíð eða þar til Haukur lést árið 1992. Minný eignaðist trausta vini og venslafólk á Sauðárkróki og átti margar góðar minningar þaðan.

Enn hélt skipið úr höfn og nú stefndi það aftur til Reykjavíkur, þar sem Minný kom sér upp afar fallegu heimili á Skúlagötu 44. Þar var hún í nálægð við börnin sín, barnabörn, frænkur og vini, sem hún bar sérstaka umhyggju fyrir. Minný var glæsileg kona og það geislaði af henni góðvild og hlýja. Snyrtimennska var henni í blóð borin svo af bar.

Það var sérstök hátíð í bæ þegar Minný kom til Akureyrar að heimsækja skyldfólkið sitt, það var mikið hlegið og spjallað. Við sögðum stundum að hún væri fædd inn í þessa grautarfjölskyldu, því mjólkurgautur og ís var hennar uppáhald. Við frændsystkinin höfum gert það að vana að hittast einu sinni á ári til skiptis hjá fjölskyldunum. Minný lét sig ekki vanta þar og var hrókur alls fagnaðar og sagði oft að við værum öll eins og systkini sín.

Það er komið að leiðarlokum um sinn.

Vængjuð er sú farþrá, sem vorið hefur kallað

á vit sín töfraglæst.

Í fjarlægð geta lokist upp hlið að óskahöllum,

sem heima voru læst.

Það er draumamannsins fley, sem í festar hefur togað,

og farmurinn er þrá.

Hvort flytjast allir burtu, sem fegri drauma eiga,

en fólkið kringum þá?

Og þú, sem hefur kjark til að brjóta af þér böndin,

eins og býður draumur þinn.

Ef örlög skyldu draga sín dyratjöld til

hliðar,

og draumalandið opnast, - gakk þá inn.

Í kvöldroðann hann siglir. Við kveðjum hann í fjöru.

Í kvöld fá draumar ræst.

Þann væng fær enginn stöðvað, sem vorið hefur kallað

á vit sín töfraglæst.

(Kristján frá Djúpalæk.)

Skip þitt er komið að landi og ferð þinni lokið um sinn.

Við kveðjum þig elsku frænka með virðingu og þökk.

Fjölskyldunni allri vottum við okkar dýpstu samúð.

Steinunn, Gunnlaugur,
Margrét og Guðrún.

Í fáeinum orðum langar okkur að minnast Minnýjar Leósdóttur samstarfskonu okkar til fjölda ára, en hér á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki vann hún í tæp 40 ár.

Líf hennar snerist að mestu leyti um hjúkrun og sinnti hún því starfi alla tíð af alúð og samviskusemi. Hún var jákvæð og glaðvær og aðalsmerki hennar var snyrtimennska á öllum sviðum. Svo stutt er síðan við héldum henni kveðjuhóf, eða við starfslok hér, og samglöddumst henni er hún fluttist til Reykjavíkur, þar sem hún vildi dvelja nálægt börnunum sínum og fjölskyldum þeirra.

Um leið og við kveðjum Minný með miklum söknuði sendum við börnunum hennar, Leó og Sæunni, og fjölskyldum þeirra innilegar samúðarkveðjur ásamt öllum þeim er þótti vænt um hana.

Svo viðkvæmt er lífið sem vordagsins blóm

er verður að hlíta þeim lögum

að beygja sig undir þann allsherjardóm

sem ævina telur í dögum.

Við áttum hér saman svo indæla stund

sem aldrei mér hverfur úr minni.

Og nú ertu gengin á guðanna fund

það geislar af minningu þinni.

(Friðrik Steingrímsson.)

Samstarfskonur Dvalarheimilinu á Sauðárkróki.

Minningarnar hrannast upp þegar við fréttum að Minný Leósdóttir væri látin. Við kynntumst í Hjúkrunarskóla Íslands þegar við vorum að hefja nám í hjúkrun. Með okkur tókst vinátta sem staðist hefur tímans tönn. Örlögin höguðu því þannig til að Minný varð að hverfa frá námi um tíma en hún hóf nám aftur ári síðar þannig að við urðum ekki samferða í námi. Síðar varð starfsvettvangur hennar á Sjúkrahúsi Sauðárkróks. Þótt fjarlægðin væri þessi slitnuðu tengslin aldrei og þegar hún fluttist til Reykjavíkur fyrir tveimur árum tókum við upp þráðinn að nýju. Við hittumst alltaf í hádeginu fyrsta laugardaginn í hverjum mánuði yfir vetrartímann og borðuðum saman. Þræddum matsölustaðina og skemmtum okkur við að bera saman staðina. Við nutum þess að fá Minný í hópinn og hún naut þess ekki síður. Minný sá alltaf jákvæðu og skoplegu hliðarnar á hverju máli og geislaði af lífsgleði. Við munum sakna hennar úr hópnum en þökkum jafnframt fyrir þau ár sem við nutum samvista við hana. Við sendum fjölskyldu hennar samúðarkveðjur.

Hádegishópurinn

Alda, Hólmfríður, Lára, Lyndís, Margrét, Ragnheiður og Ríkey.

Lát mig starfa lát mig vaka, lifa, meðan dagur er. Létt sem fuglinn lát mig kvaka, lofsöng, Drottinn, flytja þér. Lát mig iðja, lát mig biðja, lífsins faðir, Drottinn hár. Lát mig þreytta, þjáða styðja, þerra tár og græða, gleðja og fórna öll mín ár.

Elsku amma mín, nú ertu farin á betri stað sem mér finnst samt svo erfitt að sætta mig við. Þetta gerðist allt svo hratt, mamma sagði mér að þú hefðir fengið blóðtappa í heilann og mér brá svo því þú hafðir alltaf verið svo hraust. Ég heimsótti þig á spítalann og þú hélst í höndina mína, ég hélt þá að þetta mundi allt lagast því þú varst kominn undir læknishendur en guð ákvað að þín jarðvist yrði ekki lengri því daginn eftir varst þú dáin. Ég trúði því ekki að þú værir ekki lengur hér.

Þú varst ótrúleg kona sem hafðir gengið í gegnum margt erfitt en samt varstu alltaf svo kát og hress. Þú varðst aldrei uppiskroppa með umræðuefni og mér fannst alltaf svo gaman að hlusta á þig segja frá öllu sem hafði á daga þína drifið. Ég hef svo margt fallegt að segja um þig en á svo erfitt með að festa það á blað því ég trúi ekki að þú sért farin, elsku amma mín. Ég vildi að þú værir hérna ennþá til að sjá mig verða stóra og taka þátt í mínu lífi en ég veit að þú fylgist með mér að ofan og ég hugsa alltaf til þín. Ég kveð þig með söknuði en við hittumst aftur. Guð varðveiti þig, elsku amma mín.

Þín dótturdóttir,

Anna Sóley.

Lát mig starfa lát mig vaka,

lifa, meðan dagur er.

Létt sem fuglinn lát mig kvaka,

lofsöng, Drottinn, flytja þér.

Lát mig iðja, lát mig biðja,

lífsins faðir, Drottinn hár.

Lát mig þreytta, þjáða styðja,

þerra tár og græða,

gleðja og fórna öll mín ár.

Kæra Minný mín, nú ertu komin á grænar grundir í betri heimi. Skólanum hér er lokið. Þú varst snögg að kveðja. En ekki varstu alltaf svo. Hugurinn leitar á gamlar slóðir til Sigló. Þar sem við slitum barnsskónum, og sólin skein í heiði. Lífið var óskrifað blað. Við fórum báðar snemma að heiman, þú til náms en ég að vinna. Höfðum samt alltaf spurnir hvor af annarri. Þú eignaðist þín börn, Leó og Sæunni. Árin liðu. Aftur lágu leiðir saman 1972. Þá á Króknum, þú varst þá gift Hauki Stefánssyni, þeim prúða manni. Næstu árin unnum við saman hlið við hlið, þú sem hjúkka, ég sjúkraliði. Árið '88 fór ég til Noregs í vinnu. Þú varst dugleg að hafa samband, með bréfum og jólaglaðningi. Þessi ár á Króknum vorum við nánar. Alla tíð varstu glöð og hýr, Minný mín, á hverju sem gekk. Þú varst "medmenneske" eins og Norðmenn mundu orða það, já, þú vildir allra götu greiða, það fann ég oft í okkar starfi. Höfðingi heim að sækja. Síðast er við hittumst áttum við góðan dag saman, löbbuðum allan Laugaveginn, skoðuðum í búðir, drukkum súkkulaði og röbbuðum saman, þá varstu komin í fallegu íbúðina þína á Skúlagötunni, það var indælt að vera með þér þennan dag. En því fer nú miður að við verðum víst að endurtaka þetta á öðrum stað og í öðrum tíma. Svona er lífið, vinirnir kveðja hver af öðrum er við komum upp í árin. Kannski er best að verða ekki mjög gamall nú í þessu þjóðfélagi okkar, þar sem æskudýrkunin ræður mestu. Við eigum svo langt í land að virða það sem gamlir kveða.

Þú hafðir alla tíð taugar heim á Sigló ekki síður en ég. Lengi hafðir þú æskuheimilið þar og hugsaðir vel um þína góðu foreldra til hinstu stundar. Minný mín, þú sýndir mér mynd af nöfnu þinni að vaða í fjörunni heima á sólskinsdegi, hún var svo falleg, berfætt og sólin glampaði í sjónum kringum hana. Svona er á Sigló í sól og sumri. Ég vona að Guð gefi að hún erfi eitthvað frá þér af léttri lund og góðmennsku.

Sendi öllum þínum samúðarkveðjur mínar, sérlega Leó og Sæunni og fjölskyldum þeirra. Guð styrki ykkur í sorginni.

Viktoría Særún Gestsdóttir (Vigga Gests.)

Hann var ekki stór hópurinn sem hóf nám í Hjúkrunarkvennaskóla Íslands í janúar 1959. Eftir fyrstu próf minnkaði hann enn. Minný Leósdóttir var ein af þeim sem áfram hélt, en þá var hún að hefja nám í annað sinn. Hún hafði nefnilega hitt draumaprinsinn, farið að eiga börn og hætt í námi. Ekki átti hún samleið með þeim prinsi, og varð nú að færa þá fórn til að geta hafið nám að nýju að fela öðrum börnin sín. Hún saknaði sárt barnanna og var óviss um hvort ákvörðunin um námið væri rétt. Skólinn gerði kröfu um að allir byggju á heimavist, útileyfi fá, en margir nemendur þoldu illa þetta ófrelsi og fannst það vera að kæfa sig. En auðvitað hafði þetta sambýli sína kosti, við kynntumst mjög vel, deildum súru og sætu, hjálpuðumst að og ólum hver aðra upp. Minný var aðeins eldri en við flestar og lífsreyndari og hún miðlaði okkur af hlýju sinni, glaðværð og góðum ráðum. Eitt af því sem einkenndi Minný var snyrtimennskan, allt var hreint sem hún kom nálægt, hún hafði einstakt lag á að koma hlutunum þannig fyrir að lítið herbergi leit út eins og stássstofa.

Sjúklingarnir elskuðu Minný, hún geislaði frá sér hlýju og umhyggju og við vildum allar að Minný hjúkraði okkur þegar við værum orðnar gamlar og veikar, þótt við vissum það vel að hún mundi eldast eins og við.

Svo kom að útskriftardegi og við tvístruðumst í allar áttir, til útlanda og um land allt. Það gekk ekkert sérlega vel að halda sambandinu, við áttum á þeim tíma flestar nóg með okkur. Við höfðum þó alltaf spurnir hver af annarri, en það var ekki fyrr en síðustu ár að við fórum að mæla okkur mót og hittast, og eina fræga ferð fórum við til Danmerkur en þá bjuggu þar þrjár úr hópnum. Það var svo gaman að vera saman, við færðumst aftur um svona 35 ár. Minný var auðvitað sama glaða og góða stúlkan sem við höfðum skilið við forðum og við hétum því að halda áfram að hittast.

Það var svo í byrjun júní sem við ætluðum að hittast í Stykkishólmi og halda upp á 40 ára útskriftarafmælið okkar, en ein af skólasystrunum býr þar. Það var okkur áfall þegar við fréttum lát Minnýjar, og samveran í Stykkishólmi varð þess vegna allt öðruvísi en við höfðum hugsað okkur, hún var sú fyrsta úr þessum litla 13 manna hópi sem kvaddi þessa jarðvist. Við sendum henni hlýjar fyrirbænir og fjölskyldu hennar. Blessuð sé minning hennar.

Skólasystur

úr Hjúkrunarskóla.

Anna Sóley.