Saturday, August 19, 2006

María Ásgrímsdóttir

Sunnudaginn 24. júlí, 1994 - Minningargreinar

MARÍA ÁSGRÍMSDÓTTIR

María Ásgrímsdóttir fæddist á Barði í Fljótum 23. október 1896. Hún lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 18. júlí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Ásgrímur Sigurðsson og Sigurlaug Sigurðardóttir sem lengst af bjuggu að Dæli í Fljótum. Þau áttu 13 börn og er eitt þeirra á lífi, Dagbjört, búsett á Dalvík. María ólst upp á Steinhóli í Fljótum til 11 ára aldurs, en þá fór hún aftur til foreldra sinna. Árið 1922 giftist hún Guðvarði Péturssyni, f. 2. ágúst 1895, d. 11. desember 1987. Þau bjuggu lengst af á Minni-Reykjum í Fljótum, en seinna á Ökrum í sömu sveit. Þau eignuðust 11 börn, en áður eignaðist María dóttur, Huldu, sem lést fyrir nokkrum árum. Eitt barna þeirra Maríu og Guðvarðar dó þriggja daga gamalt, en hin tíu eru: Hólmfríður, Ásta, Helga, Sigurður, Bæringur, Þórarinn, Pétur, Sigurlaug, Ragna og Hreinn. Einnig ólu þau upp Guðvarð Jónsson, bróðurson Guðvarðar, og Örn Albert, sonarson þeirra. Afkomendur þeirra eru nú orðnir um 130. Árið 1975 fluttu þau til Akureyrar og bjuggu að Hrafnagilsstræti 31. Síðustu fjögur árin dvaldist María á Fjórðungssjúkrahúsinu. Hún verður jarðsungin frá Barðskirkju í Fljótum á morgun og jarðsett þar.



Er sólin skein í hjarta
þá skugga dró um stund
því brosið þitt bjarta
og blíða létta lund leið hægt á æðri fund.
Nú geysist þú um grundir og gleðin frá þér skín
þar eru endurfundir við alla er biðu þín.

Við geymum minninguna um þig, amma mín, að eilífu og kveðjum þig með kærleika og þakklæti. Hvíl þú í friði.

Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.

(Þýð. S. Egilsson)

- María Sigmundsdóttir.


Nú þegar amma María hefur lokið langri og farsælli ævigöngu, er okkur systrum efst í huga þakklæti fyrir að hafa fengið að eiga þessa yndislegu ömmu, konu sem með lífi sínu gerði heiminn bjartari og betri öllum þeim sem urðu þeirrar gæfu aðnjótandi að eiga hana að. Minningin um ástúð, umburðarlyndi, glaðlyndi og gjafmildi hennar verður okkur dýrmætt veganesti.

Amma vann hörðum höndum mestallt sitt líf, líkt og flestir af hennar kynslóð. Hlutskipti hennar var að vera bóndakona í harðbýlu héraði. Börnin urðu tólf, það yngsta dó í vöggu, en 11 uxu upp og urðu mannkostafólk. Elsta dóttirin, Hulda, lést fyrir allmörgum árum. Auk þess ólu þau upp bróðurson afa, sem fylgdi honum á heimilið, þegar þau amma giftust, og síðar tóku þau að sér einn sonarsona sinna.

Oft hlýtur að hafa verið þröngt í búi hjá þeim afa og ömmu með allan þenna barnahóp, en allt bjargaðist þetta með dugnaði og bjartsýni. Árin liðu, börnin uxu úr grasi og fóru burt hvert af öðru og dreifðust vítt um land. Þá taldi amma ekki eftir sér að ferðast langar leiðir til að heimsækja þau. Tilhlökkunin var mikil hjá okkur systrum, þegar von var á ömmu suður í heimsókn og gleðin stór þá daga sem hún dvaldi. Mikið var þá gott á morgnana að skríða upp í hlýjan faðminn og verma kaldar tær í bólinu hennar. En svo varð hún að drífa sig aftur norður, því að þar voru afi og Örn einir heima og kýrin nýborin.

Amma hafði mikið yndi af bóklestri og blómarækt, en einnig var hún mikil prjónakona. Nutu fallegu ömmuvettlingarnir mikilla vinsælda jafnt innan fjölskyldunnar sem utan. Eitt sinn, eftir að amma hafði orðið að leggjast inn á sjúkrahús, sat hún næstu vikurnar og kepptist við að prjóna vettlinga sem hún hafði verið beðin um meðan hún var þar, því að svo margir höfðu séð það sem hún var með á prjónunum og langað til að eignast slík djásn. Amma átti líka alltaf mola upp í litla munna, þegar langömmubörnin komu í heimsókn. Trítlaði oft lítill stúfur og hvíslaði í eyra langömmu, hvort hún ætti ekki eitthvað, og þá vissi hún alltaf við hvað væri átt. Iðulega var og seðli laumað í lófa þegar kvatt var, og ef maldað var í móinn hló hún við og bað mann að nefna ekki þetta lítilræði.

Að leiðarlokum viljum við systurnar þakka þér, elsku amma, fyrir allt sem þú varst okkur og fjölskyldum okkar.

Greta Björg Úlfsdóttir.


Þriðjudaginn 16. ágúst, 1994 - Minningargreinar

MARÍA ÁSGRÍMSDÓTTIR OG GUÐVARÐUR PÉTURSSON


MARÍA ÁSGRÍMSDÓTTIR OG GUÐVARÐUR PÉTURSSON

ÞANN 18. júlí síðastliðinn andaðist María Ásgrímsdóttir, kennd við Minni-Reyki í Vestur-Fljótum, á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri, frænka mín í föðurætt á nítugasta og áttunda aldursári en hún fæddist 23. október 1896. Foreldrar hennar voru þau Ásgrímur Sigurðsson bóndi á Dæli í Fljótum og kona hans Sigurlaug Sigurðardóttir. María var alsystir Sigurðar í Dæli, Páls á Illugastöðum og Kristins á Stóra-Grindli í Fljótum.

Sigurlaug móðir Maríu var vinnukona á prestsetrinu Barði, þegar María fæddist og varð hún því að senda dótturina frá sér. Ólst hún upp á Steinhóli í Flókadal hjá þeim Guðbrandi Jónssyni og konu hans Sveinsínu Sigurðardóttur, sem þar bjuggu á árunum 1887 til 1918. Þar á bæ var einnig móðir Sveinsínu, Helga Guðrún systir séra Jóns Norðmanns, sem veitt var Barðsprestakall árið 1849 og drukknaði í Flókadalsvatni 15. mars 1877. Helga var mikið með Maríu fyrstu árin hennar á Steinhóli og minntist María hennar oft með hlýhug og kallaði hana oft ömmu, enda fann hún hjá Helgu það skjól, er barni er mikilvægt á vordögum æviskeiðsins.

Árið 1907 fluttust foreldrar Maríu að Dæli, sem er örskammt frá Barði og fór María til þeirra orðin ellefu ára gömul. Þar var hún næstu árin með foreldrum sínum og systkinum. Þau Ásgrímur og Sigurlaug eignuðust 13 börn og komust níu þeirra til fullorðinsára. Af þeim er í dag eitt á lífi, Dagbjört Ásgrímsdóttir og er hún búsett á Dalvík. Dagbjört er þekkt fyrir fræðimennsku sína og ljúflyndi.

María á Minni-Reykjum var nett kona, ljóshærð, augun dimmblá, fremur lágvaxin en liðleg og sérlega létt á fæti á yngri árum og snör í snúningum. Hún var með ágætum verki farin, eignaðist snemma prjónavél, vann allar flíkur á sitt fólk og saumaði mikið. Hún var glaðlynd, söngvin og ljóðelsk, kunni mikið af kvæðum og sönglögum. Hún hafði ávallt yndi af bókum og notaði sér næði efri áranna til lestrar. Hún var sérstaklega barngóð og börnum sínum mikil móðir. Sumarbörn, sem dvöldust hjá henni á síðari búskaparárunum, minnast hennar með ánægju fyrir létta lund og kátínu. Ekki lét hún sitt eftir liggja við búskapinn. Hún sló með orfi og ljá meðan tún voru ekki véltæk.

Á uppvaxtarárum Maríu, voru þjóðfélagsaðstæður allar aðrar en nú þekkjast. Ungt fólk í Fljótum hafði ekki marga valkosti frekar en annars staðar til sveita. Það þurfti að yfirgefa foreldrahús til þess að vinna fyrir sér eins og daglegt líf krafðist. Svo var hjá Maríu og eftir að hún fór frá Dæli var hún í vist á ýmsum stöðum, m.a. á Siglufirði og Hafsteinsstöðum í Staðahreppi. Hún var hvarvetna eftirsótt til starfa.

Mikil hákarlaskipaútgerð var um þessar mundir frá Norðurlandi og voru skipsrúm á þessum veiðiskipum eftirsótt. Því var það að margir framsýnir ungir dugnaðarmenn úr Fljótum, sérstaklega úr Flókadal réðu sig til þessara starfa. Nokkur hákarlaskipanna týndust við þessar veiðar og með þeim of margir ungir dugnaðarforkar, heilar skipshafnir. Þetta manntjón og blóðtaka sveitarinnar sagði til sín. Búskaparbaslið óx og dróst saman í kjölfar kreppunnar, sem ríkti á flestum sviðum í landinu. Það varð áberandi og alvarleg fátækt í Flókadal og Fljótum. Missir þessara vösku ungmenna sem fórust við þessar veiðar var ekki á bætandi í þessari fámennu sveit.

Árið 1922 markaði þáttaskil í lífi Maríu Ásgrímsdóttur. Þá giftist hún Guðvarði Sigurbergi Péturssyni, f. 2. ágúst 1895 á Kleif á Skaga, en hann var sonur Péturs bónda í Keldnakoti í Sléttuhlíð og konu hans, Hólmfríðar Guðvarðardóttur.

Guðvarður var í hærra meðallagi, grannvaxinn á yngri árum og beinn í baki; augun ljósgrá, hárið skollitað. Hann var hæglátur í fasi og friðsamur, heiðarlegur í öllum viðskiptum og mátti ekki vamm sitt vita. Hann var iðjusamur og duglegur, reyndi ávallt að bæta þær jarðir, sem hann sat á. T.d. gróf hann allmörg lokræsi í túnið á Minni-Reykjum. Hann gróf skurði með handafli, raðaði grjóti í botninn, sem hann ók að vetrinum, mokaði mold yfir og þakti síðan. Þannig tókst honum að þurrka og bæta túnið.

Þá var hann góður hleðslumaður. Bókhneigður var hann, ekki síður en kona hans og notaði flestar stundir sem gáfust til lestrar.

Guðvarður fylgdist alltaf vel með félagsmálum og sat í hreppsnefnd á tímabili.

Þau hjónin fluttust frá Minni-Reykjum að Ökrum í sömu sveit árið 1962, en tóku ekki við búi þar fyrr en árið eftir, þegar Hreinn sonur þeirra fluttist burtu. Eftir að þau brugðu búi í Ökrum, fluttust þau til Dalvíkur um eins árs skeið, en fóru síðan búferlum til Akureyrar. Þar andaðist Guðvarður 11. desember 1987.

Þegar, skömmu eftir að hafa lokið námi í Verzlunarskóla Íslands í Reykjavík árið 1936, var ég ráðinn kaupfélagsstjóri í Haganesvík og kynntist þá fyrst hjónunum á Minni-Reykjum og barnahópnum þeirra. Þau eignuðust ellefu börn en misstu eitt þeirra skömmu eftir fæðingu. Áður átti María eina dóttur, sem nú er látin, var það Hulda Guðmundsdóttir en faðir hennar var Guðmundur Gunnlaugsson.

Hulda var gift Páli Jónssyni og bjuggu þau að Lækjarvöllum í Bárðardal.

Börn þeirra Maríu og Guðvarðar sem upp komust eru öll á lífi. 1. Hólmfríður Ingibjörg er þeirra elst. Hún er búsett í Kópavogi. Maður hennar var Hákon Jóhannsson, sem nú er látinn. 2. Ásta Kristín er búsett í Reykjavík. Maður hennar er Úlfur Ragnarsson, læknir. 3. Helga Guðrún á heima á Akureyri. Hún var gift Gunnlaugi Guðmundssyni, sem nú er látinn. 4. Sigurður, búsettur á Akureyri. 5. Bæringur er búsettur í Reykjavík. Kona hans er Helena Sigurgeirsdóttir. 6. Þórarinn býr á Minni-Reykjum í Fljótum. Kona hans er Sólveig Márusdóttir. 7. Pétur býr í Snjóholti í Eiða-Þinghá. Kona hans er Guðrún Einarsdóttir. 8. Sigurlaug er búsett við Laxárvirkjun. Maður hennar er Jónatan Ásvaldsson. 9. Ragna er búsett í Kópavogi. Maður hennar er Haukur Bergsteinsson. 10. Hreinn er yngstur þeirra systkina. Hann býr á Arnhólsstöðum í Skriðdal. Kona hans er Ingibjörg Einarsdóttir.

Auk barna Maríu ólst upp hjá henni Guðvarður Jónsson, bróðursonur Guðvarðar. Seinna tóku þau María og Guðvarður einnig að sér sonarson sinn Örn Albert Þórarinsson og ólst hann upp hjá þeim.

Eftir andlát Guðvarðar hélt María heimili sitt að Hrafnagilsstræti 31 til ársins 1990, en þá fór hún á sjúkrahús á Akureyri, eftir að hafa lærbrotnað og þar dvaldi hún til dauðadags 18. júlí 1994.

María var jafnan heilsugóð og á sjúkrahúsinu var hugsunin skýr og hún hélt sinni meðfæddu reisn. Þar hafði hún einnig ánægju af því að fá fólk sitt í heimsókn, eins og hún var vön heima hjá sér og þar var einnig lundin létt.

Útför Maríu var gerð frá Barðskirkju 25. júlí 1994 á þeim stað, er hún leit fyrst dagsins ljós og í þeirri fallegu sveit er ævistarfið var unnið.

Séra Gísli Gunnarsson jarðsöng.

María Ásgrímsdóttir var komin heim.

Guð blessi minninguna um hjónin frá Minni-Reykjum.

Björn Dúason.