Thursday, January 05, 2006

Þórhallur Ásgeirsson

Miðvikudaginn 23. nóvember, 2005 - Minningargreinar

ÞÓRHALLUR ÁSGEIRSSON

Þórhallur Ásgeirsson, fv. ráðuneytisstjóri, fæddist í Laufási í Reykjavík 1. janúar 1919. Hann andaðist á Droplaugarstöðum laugardaginn 12. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Ásgeir Ásgeirsson, fv. forseti Íslands, f. 13. maí 1894, d. 15.

ÞÓRHALLUR ÁSGEIRSSON - mynd



Þórhallur Ásgeirsson, fv. ráðuneytisstjóri, fæddist í Laufási í Reykjavík 1. janúar 1919. Hann andaðist á Droplaugarstöðum laugardaginn 12. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Ásgeir Ásgeirsson, fv. forseti Íslands, f. 13. maí 1894, d. 15. september 1972, og kona hans Dóra Þórhallsdóttir, f. 23. febrúar 1893, d. 10. september 1964. Systur Þórhalls voru Vala (f. 8. júní 1921, d. 15. mars 2005), gift Gunnari Thoroddsen (f. 1910, d. 1983) og Björg (f. 22. febrúar 1925, d. 7. ágúst 1996) gift Páli Ásgeiri Tryggvasyni (f. 1922).

Hinn 3. október 1943 kvæntist Þórhallur Lilly Knudsen (f. 2. júní 1919 í New York). Foreldrar hennar voru Ragna og Sverre Knudsen, bæði fædd í Noregi, en dvöldu síðustu æviárin hjá Lilly og Þórhalli og eru jarðsett hér. Þórhallur og Lilly kynntust á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna (United Nations Conference on Food and Agriculture) í Hot Springs Virginia 1943 þar sem Þórhallur starfaði með íslensku sendinefndinni en Lilly með þeirri norsku. Börn þeirra eru 1) Sverrir, verkfræðingur (f. 1944), kvæntur Ingu Helgadóttur flugfreyju, börn þeirra eru a) Auður, sambýlismaður er Frank Rasmussen, b) Þórhallur, kvæntur Kötlu Sigurðardóttur. 2) Dóra, hjúkrunarfræðingur (f. 1947), gift Magnúsi B. Einarson lækni, börn þeirra eru a) Þórhallur, sambýliskona er Birta Þrastardóttir, dóttir þeirra er Mirra, b) Birgir, kvæntur Mikaelu Granqvist, dóttir þeirra er Björg Anna, c) Anna Lilly, sambýlismaður er Haukur Sigurðsson, d) Einar Björn kvæntur Gunnhildi Sigurhansdóttur, dóttir þeirra er Úlfhildur. 3) Ragna, deildarstjóri (f. 1950), gift Flosa Kristjánssyni aðstoðarskólastjóra, synir þeirra eru a) Þórhallur Örn, kvæntur Ragnhildi Söru Bergstað, synir þeirra eru Tryggvi Þór og Kári Björn, b) Kristján Haukur, kvæntur Suzanne Elizabeth Emanuel, c) Ásgeir Valur, sambýliskona er Maren Brynja Kristinsdóttir. 4) Sólveig, hjúkrunarfræðingur (f. 1956), gift Gunnari Jóakimssyni viðskiptafræðingi, börn þeirra eru a) Dóra, sambýlismaður er Ægir Laufdal Traustason, b) Gréta, c) Jóakim Þór.

Þórhallur varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1937, þá 18 ára gamall. Hann stundaði nám í hagfræði og stjórnmálafræði við Stokkhólmsháskóla 1937-1939 og á stíðsárunum við háskóla Minnesota í Bandaríkjunum þar sem hann lauk BA-prófi 1941 og mastersprófi 1942.

Að námi loknu hóf Þórhallur störf sem viðskiptafulltrúi við sendiráð Íslands í Bandaríkjunum og starfaði þar til stríðsloka. Árið 1947 tók Þórhallur við starfi ráðuneytisstjóra í viðskiptaráðuneytinu og starfaði þar samfleytt til sjötugs, að frádregnum fjórum árum sem fulltrúi Norðurlanda við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn í Washington. Á þessum tíma vann hann fyrir samtals tólf viðskiptaráðherra.

Á starfsferli sínum vann Þórhallur að mikilvægum viðskiptamálum Íslands í fjóra áratugi, hann mótaði viðskiptaráðuneytið á umbrotatímum. Hann tók þátt í að skipuleggja viðtöku Marshallaðstoðarinnar, leiddi gerð tvíhliða viðskiptasamninga við Rússland og önnur ríki Austur-Evrópu. Þórhallur sat í stjórn Norræna fjárfestingabankans (NIB) um árabil og sótti fundi fjölda alþjóðasamtaka um viðskipta- og efnahagsmál, svo sem OEEC, OECD, ECE, GATT, IMF, IBRD. Þórhallur var aðalsamningamaður við inngöngu Íslands í EFTA 1970 og annaðist samninga fyrir Íslands hönd við Efnahagsbandalag Evrópu 1972. Hann var m.a. formaður Verðlagsráðs, samstarfsnefndar um gjaldeyrismál og langlánanefndar. Þórhallur var formaður Hrafnseyrarnefndar í tuttugu ár, meðlimur í Lionsklúbbnum Ægi, sat í stjórn Íslensk-ameríska félagsins og var formaður þess í þrjú ár.

Þórhalli hlotnaðist margvíslegur heiður á sínum ferli, var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu 1956, stórriddarakrossi árið 1969 og stjörnu stórriddara 1980. Einnig veittu þjóðhöfðingjar hinna Norðurlandanna honum heiðursmerki svo sem Dannebrogsorden, sænska Nordstjärnorden, Finlands Lejon Orden og Den Kongelige Norske Sankt Olavs Orden. Hann var heiðursfélagi Karlakórs Reykjavíkur og Íslensk-ameríska félagsins.

Útför Þórhalls verður gerð frá Neskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15.

Gleði og tregi blandast saman á þessari stundu þegar við kveðjum tengdaföður minn, Þórhall Ásgeirsson. Gleði vegna þess að nú hefur hann fengið þá hvíld, sem hann hefur beðið svo lengi eftir. Tregi og söknuður vegna þess að sá mikli höfðingi og öðlingsmaður er nú allur.

Hann var vinur og ráðgjafi í hverri raun. Hann var léttur í skapi og stöðugt með góðar sögur, spakmæli eða spaugilegar athugasemdir á hraðbergi. Já, tregi en um leið gleði yfir því að gefast tækifæri til að rifja upp allar þær góðu stundir sem við hjónin og börn okkar höfum átt á heimili Lillyar og Þórhalls, bæði hversdags og á hátíðarstundum. Þá þótti við hæfi að taka nokkur sönglög og eins heyrðist oft smá ræðustúfur, enda var Þórhallur afar vel máli farinn og vandaði jafnan mál sitt.

Þórhallur þurfti oft að fara langar ferðir vegna starfs síns, en aldrei taldi hann eftir sér að leggja lykkju á leið sína til að heimsækja börn og barnabörn sem bjuggu um skeið erlendis. Einkum voru það barnabörnin sem drógu hann að sér, því hann hefur allt fram á síðasta dag verið með eindæmum barngóður.

Foreldrar okkar hittust gjarnan í mat hjá okkur. Þá var oft gaman að hlusta á þau rifja upp lífið í Reykjavík á fyrri hluta síðustu aldar, en báðir feðurnir höfðu spilað fótbolta með Víkingi og margt annað var sameiginlegt. Þórhallur horfði m.a. á fótbolta í sjónvarpinu þegar hann gat og lifði sig mjög inn í leikinn. Oft kallaði hann: "Lilly, komdu og sjáðu!" þótt hann vissi vel að hún hafði lítinn áhuga á fótbolta.

Með þessum fáu orðum vil ég kveðja tengdaföður minn. Ég hef margt af honum lært, ekki síst að rækta vel sambandið við fjölskyldur mínar.

Megi minningin um góðan mann lengi lifa.

Magnús B. Einarson.

Tengdafaðir minn, Þórhallur Ásgeirsson, kvaddi þessa jarðvist laugardaginn 12. nóvember síðastliðinn eftir langa og viðburðaríka ævi. Á þeirri ævi náði hann að upplifa marga af helstu viðburðum liðinnar aldar og taka þátt í mótun og uppbyggingu hins unga, íslenska lýðveldis.

Lífsstarf hans í þágu íslenskrar þjóðar er hvað merkilegasti þátturinn í hans lífshlaupi og við ferðalok munu samstarfsmenn hans og samferðamenn minnast hans fyrir það framlag. Mig langar til að minnast hans fyrir það sem hann var okkur, fjölskyldunni, sem sterk og óbrigðul fyrirmynd í hvívetna.

Þórhall hitti ég fyrst vorið 1971, um hvítasunnuna, við hækkandi sól. Það var ef til vill dæmigert um þá áherslu sem alla tíð var lögð á mikinn samgang á milli ættmenna hans, að það fyrsta sem ég heyrði Þórhall segja var: "Flýttu þér, Ragna mín! Við erum að fara í kvöldmat til afa þíns."

Við Ragna gengum í hjónaband í Neskirkju og gestum var boðið til dýrlegrar veislu á Einimel 6 þar sem húsráðendur sköpuðu gullfallega umgjörð um þennan merkisdag í lífi unga fólksins. Þórhallur ávarpaði okkur, bauð unga manninn velkominn í fjölskylduna og hét okkur elsku og stuðningi. Andi ræðunnar er mér hjartfólginn æ síðan, því í henni skynjaði ég svo mikla og afdráttarlausa umhyggju Þórhalls fyrir fólkinu sínu.

En það var fleira sem lögð var áhersla á hjá hjónunum á Einimel. Menn skyldu sækja fram, mennta sig, leggja sitt af mörkum í starfi; standa sig. Án þess að mörgum orðum væri eytt í það var ljóst að Þórhallur hafði metnað fyrir hönd barna sinna og tengdabarna. Hann hafði væntingar um að við settum markið hátt, létum okkur ekki nægja að sigla lygnan sjó meðalmennskunnar. En í þessari viðleitni beitti hann sér ekki í krafti stöðu sinnar, heldur reyndi að beina okkur á rétta braut, þannig að við ættum verulegan þátt í niðurstöðunni.

Einu litlu dæmi um aðferð hans kann ég að greina frá. Hann kom einhverju sinni úr ferð til útlanda og kom með lítið plakat sem hann fann á ferð sinni. Hann gaf mér þetta, án þess að hafa mikinn formála. Á plakatið var ritað kvæðið IF eftir enska skáldið Rudyard Kipling, mikill bálkur um gildi æðruleysis, hógværðar og karlmennsku. Boðskapurinn var skýr.

Í heilræðabók sem ég á segir á einum stað: "Láttu þann sem þú skiptir við finna hvers hann er megnugur og gerðu það í einlægni." Ekki veit ég hvort tengdapabbi las þessa bók en fáa menn veit ég sem ræktu þessa hugmynd betur en Þórhallur Ásgeirsson. Hann hafði af því ánægju að sjá aðra blómstra, en krafðist þess ekki að vera hampað fyrir það sem hann gerði vel. Í blaðaviðtali sem tekið var við hann við starfslok kom þetta ágætlega fram þegar hann sagði: "...tel ég það skyldu embættismanna að láta sem minnst á sér bera þegar eitthvað tekst vel þótt það sé ef til vill ekki sjálfsagt mál."

Við leiðarlok vil ég þakka fyrir aldarþriðjungs samleið, og það fordæmi sem Þórhallur setti okkur með sinni eigin breytni. Það er arfleifð sem afkomendur munu halda tryggð við. Guð blessi minningu míns góða tengdaföður, Þórhalls Ásgeirssonar.

Flosi Kristjánsson.

Elsku afi minn og nafni. Ég hitti þig í síðasta sinn í sumar þegar við vorum í fríi á Íslandi og þú heilsaðir upp á Mirru litlu, langafabarn þitt. Þrátt fyrir veikindin tókstu á móti okkur af þeirri alkunnu háttvísi, sem ávallt einkenndi þig. Allar þær minningar, sem ég á um þig eru svo góðar og skemmtilegar. Þegar við vorum í bíltúr og ég, tveggja ára gamall, heimtaði að fá að vita nöfnin á öllum bílategundunum; þegar við Birgir bróðir náðum í golfkylfurnar þínar og byrjuðum að höggva niður trén í garðinum á Einimelnum, nýkomnir frá Noregi, þar sem nóg er af trjám; fótboltinn á laugardögum, Bjarni Fel og lagið góða, sem enn minnir mig á þig, þegar ég heyri það í dag; en þó mest sá djúpi áhugi, sem þú hafðir alltaf á því sem ég hafði fyrir stafni, hvort sem það voru ferðalög, tónlist eða nám. Sérstaklega hafðir þú áhuga á því, sem ég var að lesa og spurðir áhugaverðra spurninga.

Aldrei heyrði ég þig tala illa um nokkurn mann eða dæma fólk fyrir glópskubrögð. Það var eins og þér þætti ekki þess virði að taka þátt í dægurþrasi stjórnmálanna eða smámunum, sem gleymast hvort eð er þegar næsta mál ber á borð. Ég vissi í raun aldrei hvaða skoðanir þú hafðir á mönnum eða málefnum samtímans, það var hið stærra samhengi hlutanna, sem þú hafðir áhuga á og það birtist meðal annars í gífurlegri þekkingu þinni á sagnfræði. Þú mundir alltaf öll ártöl og það var gott að geta leitað til þín með hinar og þessar spurningar, sérstaklega þegar langt var í næsta bókasafn og veraldarvefurinn var aðeins fjarlæg hugmynd.

Besta og sterkasta minningin er þó um ykkur ömmu saman og hvað þið voruð jákvæð, skemmtileg og samheldin í fallegu húsi, þar sem maður var ávallt velkominn í kaffi eða mat. Mér þykir mikill heiður að hafa átt afa, sem ég get litið svo mikið upp til.

Þórhallur Magnússon.

Afi Þórhallur er látinn 86 ára gamall. Endaspretturinn var erfiður en hann hélt alltaf reisninni. Og á hjúkrunarheimilinu var hann annálaður kurteisismaður og kom það ekki á óvart. Þótt maður bili aðeins í ellinni heldur maður sínum dýpstu gildum og afi var einfaldlega svo vanur að sýna kurteisi og auðmýkt að flest hans síðustu orð voru þakkir.

Afi Þórhallur var víðlesinn maður og hafði ferðast víðar en flestir aðrir og hann naut aðdáunar og virðingar barnabarnanna. Um leið var heimili afa og ömmu eftirsótt félagsheimili okkar barnabarnanna og þar var nægt rými til að hlaupa um, leika sér og uppgötva nýja heima. Sumum þeirra rólyndari þótti líka gott að komast í bókasafnið sem talið var óendanlega stórt þar til einn kúturinn tók sig til og komst að því með talningu að raunverulega hefði safnið endanlega stærð: Eitthvað á sjötta þúsund bóka! Öll sú viska og reynsla sem afi bjó yfir nýttist honum líka vel á ótrúlega löngum og árangursríkum ferli sem ráðuneytisstjóri og í öðrum trúnaðarstörfum.

Það var alltaf tilhlökkunarefni að fara í heimsókn til ömmu og afa. Alltaf góður matur, gott fólk og nóg að tala um. Afi var tillitssamur gestgjafi og umgengust þau afi og amma hvort annað af einstakri vinsemd og virðingu. Slíkt þekki afi minn enda vel frá sínu bernskuheimili þar sem friður, vinsemd og gagnkvæm virðing mynduðu skjól og umgjörð til góðs þroska sem ég veit að gengur í arf.

"Þvílíkur fjársjóður!" veit ég að afi hefur margoft hugsað um fjölskyldu sína og líklegast hafa síðustu hugsanir hans afa verið gleðilegar hugsanir um hversu vel tókst til í þessu lífi. Því sannarlega tókst vel til og börn og barnabörn munu halda á lofti merki vel ræktaðrar fjölskyldu um langa framtíð. Ég óska að mér takist jafnvel til og afa Þórhalli og ömmu Lillý. Guð blessi minningu afa Þórhalls.

Kristján Haukur Flosason.

Við frænkurnar viljum minnast afa Þórhalls með nokkrum orðum. Ótal góðar minningar streyma um hugann þegar við hugsum til afa. Hann var fyrst og fremst frábær afi og það var alltaf gaman að vera í kringum hann. Það sem einkenndi afa alla hans ævi var hversu kurteis hann var og mikill herramaður. Þrátt fyrir veikindi þá voru það eiginleikar sem aldrei töpuðust, eiginleikar sem vert er að taka sér til fyrirmyndar.

Afi var mikill fjölskyldumaður. Hann fylgdist vel með okkur barnabörnunum og hafði mikinn áhuga á því sem við höfðum fyrir stafni og var tilbúinn til að hjálpa okkur hvenær sem var. Oftar en ekki var Einimelur, heimili afa og ömmu, fyrsti viðkomustaður við heimildaleit og ritgerðasmíð. Okkur fannst það ekki skipta máli að hverju við spurðum afa, alltaf átti hann svör og góða bók um viðfangsefnið.

Afi Þórhallur og amma Lilly voru dugleg að kalla saman alla fjölskylduna og er hún fyrir vikið mjög samheldin. Afi var þá iðulega með myndavélina á lofti og var hann einn af fyrstu mönnum til að fá sér videómyndavél. Til eru ómetanlegar minningar á myndum og spólum frá honum sem við munum varðveita vel.

Þegar hugsað er um afa Þórhall er ekki annað hægt en að hugsa um ömmu Lilly líka því þau voru svo samrýnd. Ást þeirra hvors til annars virtist óendanleg og gengu þau iðulega hönd í hönd og kvöddust ávallt með kossi. Amma Lilly hefur misst mikið en hún hefur sýnt ótrúlegan styrk í veikindum afa.

Við gætum nefnt svo margt sem kemur upp í hugann, svo sem matarboð á Einimel, golf, gráa Volvoinn, endalausan fróðleik og rauða jólavestið en þetta er aðeins brot af þeim minningum um afa Þórhall sem við munum varðveita alla okkar ævi.

Hvíl í friði, elsku afi.

Anna Lillý og Dóra.

Þórhallur móðurbróðir okkar var virtur, fær og nákvæmur embættismaður. Það blasti við öllum.

En innávið, í einkalífinu, var hann einstakur og hlýr fjölskyldufaðir. Góður stóribróðir mömmu okkar, Völu, styrkur mágur föður okkar, Gunnars, án þess að láta stjórnmál trufla sig þar á nokkurn hátt. Hlutlægt og huglægt mat á öllum málum, stjórnaði gerðum hans á réttlátan hátt í allri hans embættisfærslu.

Hjónaband Þórhalls og Lillyar var einstakt, hlýja og traust ríkjandi, og umhyggja þeirra beggja fyrir börnum og barnabörnum óendanleg.

Heimili hans og Lillyar stóð okkur systrum opið, þegar foreldrar okkar bjuggu í Danmörku. Og þar ríkti virðing og umhyggja. Og góði maturinn Lillyar.

Upp koma myndir: Jólaboð í stórfjölskyldunni. Þórhallur í rauða jólavestinu sínu, glaður að hitta alla, umhyggjusamur, hlýr, elskulegur og áhugasamur. Og myndatökuáhuginn, alltaf takandi myndir, bæði ljós- og kvikmyndir af stórfjölskyldunni. Það er honum að þakka að kvikar heimildir eru til af okkur krökkunum, nú á fimmtugs, sextugs og sjötugsaldri, sem fjörugum börnum í leik og starfi með afa og ömmu á Bessastöðum.

Þórhallur móðurbróðir var tákn okkar um stöðugleika, órofa fjölskyldutengsl, virðuleika og væntumþykju.

Samúðarkveðjur til Lillyar, og fjölskyldu.

Dóra og María Kristín Thoroddsen.

Þórhallur móðurbróðir var nátengdur okkur frá fyrstu tíð. Við strákarnir litum upp til hans. Hann hafði búið í Ameríku og kunni skil á svo mörgu sem ungum strákum fannst spennandi, og hann var tilbúinn að ræða við okkur og svara spurningum um ýmislegt sem fullorðnum fannst oft harla lítilfjörlegt.

Árin liðu og Þórhallur varð einn af helstu embættismönnum þjóðarinnar. Sem ráðuneytisstjóri í viðskiptaráðuneytinu tókst hann á við flókin og erfið verkefni í því stífa umhverfi sem viðskipti voru þá njörvuð í. Hagur þjóðarinnar var mjög háður því að hagstæðir samningar næðust við erlend ríki um útflutning og innflutning. Það kom alloft í hlut Þórhalls að leiða slíka samningsgerð. Þórhallur var afar samviskusamur maður og mátti ekki til þess vita að vera rekinn á gat eða bregðast í málum er snertu hans starfssvið. Hann aflaði sér snemma viðtækrar þekkingar í þessum efnum og fylgdist vel með þróun og nýjum viðhorfum í heimsviðskiptum. Þetta ásamt náttúrulegri greind og staðfestu, sem hann bjó yfir í ríkum mæli, gerðu hann að mjög hæfum samningamanni. Það er einnig víst að sú mikla hlýja sem streymdi frá honum ásamt léttum húmor hafi átt þátt í farsælli lausn margra vandamála sem ráðuneyti hans og samninganefndir þurftu að glíma við.

Við kynntumst Þórhalli vel sem fjölskylduföður. Heimili þeirra Þórhalls og Lillyar stóð okkur alltaf opið þegar á þurfti að halda, t.d. þegar foreldrar okkar voru erlendis. Við bræður bjuggum hjá þeim um tíma, m.a. annar okkar í Washington þar sem Þórhallur var fulltrúi Norðurlanda við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn. Umhyggja þeirra hjóna beggja í okkar garð verður seint fullþökkuð.

Þegar barnabörnin fóru að koma í heiminn var yndislegt að fylgjast með Þórhalli, þeirri barnslegu gleði og hlýju sem hann sýndi hverju einu þeirra. Afkomendur okkar systkina nutu einnig umhyggju og athygli þessa góða frænda.

Þórhallur var kominn fast að áttræðu þegar hann greindist með Alzheimersjúkdóm og heilsu hans hrakaði stöðugt. Þetta voru erfið ár fyrir hann og fjölskylduna. Börn Þórhalls og Lillyar hafa sannarlega erft mannkosti foreldranna. Því kom ekki á óvart sú einstaka umhyggja og natni, sem þau sýndu föður sínum í veikindum hans. Og ekki brást Lilly eiginmanni sínum. Hún er sannkölluð hetja.

Megi Guð styrkja ástvini Þórhalls við brottför hans. En það eiga allir sem kynntust Þórhalli miklu meira að þakka en syrgja.

Blessuð sé minning Þórhalls.

Ásgeir og Sigurður G. Thoroddsen.

Án efa þekkja flestir til starfa Þórhalls Ásgeirssonar frá þeim áratugum sem hann var ráðuneytisstjóri viðskiptaráðuneytisins. Ráðuneytið gegndi þá enn viðameira hlutverki í athafnalífi landsmanna og stjórnsýslu en nú á dögum viðskiptafrelsis. Starfið var vandasamt en fáir embættismenn nutu jafn mikillar virðingar og Þórhallur fyrir þekkingu sína og vammlaust starf. Aðrir verða án efa til að skrifa um margháttuð og merk störf Þórhalls fyrir þjóðina og á alþjóðavettvangi en við viljum kveðja ástkæran frænda.

Þórhallur, Vala og móðir okkar Björg voru samrýnd systkin. Þau sáu til þess að stórfjölskyldan hittist og héldi saman eftir að ömmu Dóru og afa Ásgeirs naut ekki lengur við. Við frændsystkinin vorum hreykin af Þórhalli og nutum þess öll að eiga slíka fyrirmynd sem hann var.

Við minnumst hans sem hins barngóða frænda sem unni sínum nánustu og vildi þeim allt hið besta. Vel getur verið að hinn nákvæmi, reglusami og kurteisi ráðuneytisstjóri hafi virkað á ýmsa sem fjarlægur. Hann bar vissulega ekki sín persónulegu mál á torg en var gleðigjafi í góðra vina hópi. Það var sjónhverfingu líkast að sjá Þórhall þegar hann gældi við smábörnin eða hlustaði á unglingana. Hjartahlýjan og gleðin skein úr andliti hans og öllu fasi. Hann var frábær pabbi, afi og frændi.

Margar minningar sækja að og oft eru það hinir litlu, hversdagslegu hlutir sem koma upp í hugann. Þórhallur var t.d. tæknilega sinnaður og langt á undan sínum tíma í ýmsu. Hann var sá sem kynnti okkur sem unglingum fyrir Bítlunum því hann keypti alltaf nýjustu plöturnar þegar hann skrapp til útlanda. Þórhallur var líka sífellt að taka bæði ljósmyndir og kvikmyndir. Sem börn vorum við ekki hrifin af þessu áhugamáli hans en margoft síðan höfum við glaðst innilega við að geta horft á myndir frá uppvaxtarárum okkar. Stórfjölskyldan hittist enn hver jól og gaman er við slík tækifæri þegar sýndar eru gamlar kvikmyndir Þórhalls, m.a. frá jólum á Bessastöðum. Myndirnar eru dýrmætur fjársjóður fyrir alla fjölskylduna.

Í veikindum Þórhalls síðustu árin kom vel fram einstök umhyggja Lillyar og fjölskyldu þeirra. Fyrir hönd okkar, afkomenda okkar og Páls Ásgeirs föður okkar viljum við kveðja Þórhall með þakklæti í huga fyrir alla þá gleði og allan þann stuðning sem Einimelsfjölskyldan hefur veitt okkur gegnum árin og þá ekki síst þegar móðir okkar Björg stríddi við veikindi sín. Blessuð sé minning Þórhalls Ásgeirssonar.

Dóra, Tryggvi, Herdís, Ásgeir og Sólveig

Páls- og Bjargarbörn.

Kær vinur minn og skólabróðir, Þórhallur Ásgeirsson, er látinn eftir langvarandi veikindi. Við vorum bekkjarsystkini alla okkar skólagöngu í Miðbæjarbarnaskólanum og síðar í Menntaskólanum í Reykjavík allt til stúdentsprófs 1937.

Ég minnist þess hve Þórhallur var strax í barnaskóla sérstaklega kurteis drengur og þessir eiginleikar hans héldust alla tíð. Þórhallur var einstakt prúðmenni og ljúflingur mikill, sannkallaður heiðursmaður með mikla persónutöfra.

Síðar styrktust tengsl okkar enn frekar, þegar Gunnar bróðir minn kvæntist Völu systur hans. Vala lést einnig á þessu ári, aðeins fyrir sjö mánuðum. Það var sama reisn yfir þeim systkinum, hávöxnum og tígulegum, auk hinnar ljúfu framkomu. Mikill sjónarsviptir er að þeim báðum. Við Einar og börnin okkar nutum þess mikið að hitta Þórhall og Lilly í fjölskylduboðum hjá Gunnari og Völu.

Um áramótin 1943-44 var ég ásamt fleiri Íslendingum frá New York í boði hjá Thor Thors, sendiherra í Washington. Þar hitti ég Þórhall, sem var orðinn sendiráðsritari, ásamt sinni yndislegu og glæsilegu konu Lilly, voru þau þá nýgift.

Þremur vikum síðar lagði ég af stað með Goðafossi til Íslands í herskipafylgd og vorum við 30 daga á leiðinni. Þetta var á stríðsárunum og held ég að enginn úr fjölskyldu Þórhalls hafi þá verið búinn að hitta Lilly. Það þótti því mjög fréttnæmt þegar ég kom heim að ég hefði nýverið hitt hana og var ég því mikið spurð innan fjölskyldunnar.

Við samstúdentarnir frá 1937 höfum komið saman árlega, þó að hópurinn sé farinn að þynnast mikið. Vorum við aðeins fimm af 54, sem treystum okkur til að mæta s.l. sumar. Þórhallur var einn af frumkvöðlum að þessum vinafundum. Reyndar hefur hann ekki getað verið með okkur undanfarin ár og höfum við saknað hans mikið. Okkur er sérstaklega minnisstætt þegar Þórhallur og Lilly opnuðu heimili sitt fyrir okkur og buðu okkur öllum heim til sín á 50 ára stúdentsafmælinu en þá var hópurinn töluvert fjölmennari.

Að lokum vil ég fyrir hönd stúdenta 1937 færa Þórhalli innilegar þakkir fyrir samfylgdina og veit ég að hans verður sárt saknað þegar við komum saman á næstu árum.

Hjartanlegar samúðarkveðjur sendum við þér, elsku Lilly, og fjölskyldu þinni.

Blessuð sé minning Þórhalls.

Margrét Thoroddsen.

Við Þórhallur Ásgeirsson kynntumst fyrst í menntaskóla þar sem hann var einu ári á undan mér, en hittumst svo brátt aftur í Svíþjóð, þar sem hann var við nám í stjórnmálafræði og hagfræði. Um þetta leyti voru íslenskir stúdentar í vaxandi mæli að leita til náms í Svíþjóð þar sem námstilhögun var mun frjálslegri en á öðrum Norðurlöndum. Aðalkennari Þórhalls þau tvö ár er hann dvaldi í Svíþjóð var Herbert Tingsten, nafntogaður sem skarpur fræðimaður og mælskur baráttumaður. Undir handleiðslu hans var Þórhallur byrjaður á ritgerð um sögu Framsóknarflokksins, sem hann síðar lauk sem prófritgerð til meistaragráðu vestur í Bandaríkjunum, þangað sem hann hvarf eftir að styrjöldin braust út í Evrópu.

Næst lágu leiðir okkar Þórhalls saman hér heima að styrjöldinni lokinni. Hann hafði þá hafið störf í utanríkisráðuneytinu, en orðið ráðuneytisstjóri í viðskiptaráðuneytinu þegar Emil Jónsson varð viðskiptaráðherra í stjórn Stefáns Jóhanns Stefánssonar. Viðskiptaráðuneytið var lítið ráðuneyti sem hafði verið verkefnalítið allt frá því það var stofnað árið 1939. Nú fékk það hins vegar í hendurnar mikið og merkilegt hlutverk sem var þátttaka Íslands í þeirri efnahagssamvinnu Evrópulanda sem var að hefjast með tilstyrk Bandaríkjanna. Má heita að upp frá þessu hafi ævistarf Þórhalls Ásgeirssonar snúist um þessa samvinnu og um þá alþjóðasamvinnu sem fram fór á vegum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans í Washington. Frá þessu upphafi á árinu 1947 má rekja vaxandi þátttöku Íslands í alþjóðlegu efnahagssamstarfi og þá opnun landsins gagnvart umheiminum sem smátt og smátt, með töfum og rykkjum, hefur miðað áleiðis allt fram til aðildarinnar að Evrópska efnahagssvæðinu á tíunda áratug aldarinnar. Undir þetta ævistarf var Þórhallur vel búinn, annars vegar vegna dvalar sinnar á Norðurlöndum og náinnar viðkynningar við Bandaríkin, en hins vegar vegna hæfileika sinna, lipurðar og lagni, til að vinna með mönnum af ólíkri gerð og með ólíkar skoðanir.

Á fyrstu árunum eftir 1947 voru verkefni viðskiptaráðuneytisins aðallega tengd Marshall-áætluninni og þátttöku Íslands í Efnahagssamvinnustofnun Evrópu (OEEC), en þessu skeiði hefur Þórhallur sjálfur gert ítarleg skil í grein um Marshall-áætlunina í Fjármálatíðindum árið 1956.

Annað og gjörólíkt verkefni kom þó til sögunnar upp úr 1950, en það voru tvíhliða viðskiptasamningar við lönd Austur-Evrópu, sem tóku að skipta miklu máli eftir að landhelgisdeilan leiddi til erfiðleika í viðskiptum við Vestur-Evrópu. Viðamiklir samningar við Sovétríkin árið 1953 skiptu í þessu efni höfuðmáli. Það kom því í hlut viðskiptaráðuneytisins undir stjórn Þórhalls að fást annars vegar við tengsl landsins við Vestur-Evrópu og Bandaríkin, og sinna þar á meðal upphafi samninga um fríverslunarsvæði í Evrópu, og hins vegar að greiða fyrir tvíhliða viðskiptum við austurhluta álfunnar.

Árið 1958 átti Ísland í fyrsta sinn kost á að skipa sæti varafulltrúa Norðurlanda í stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Washington til tveggja ára og sæti aðalfulltrúa í tvö ár í viðbót. Þórhallur hafði mikinn áhuga á þessu starfi, og kom ekki síst til sögunnar að faðir hans hafði verið einn af þremur fulltrúum Íslands á Brettan Woods-ráðstefnunni 1944 þar sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn var stofnaður og nýrri skipan peningamála heimsins komið á. Raunar má fullyrða að Ásgeir Ásgeirsson hafi á þeim tíma verið sá eini meðal íslenskra stjórnmálamanna sem áttaði sig á þessari nýskipan og skildi hvaða þýðingu hún gæti haft hér á landi. Það var þó ekki greitt aðgöngu fyrir Þórhall að fá að taka við starfinu vegna þess viðkvæma jafnvægis sem varð að gæta í ríkjandi vinstri stjórn Hermanns Jónassonar. Ráðuneytisstjóri viðskiptaráðuneytisins þjónaði tveimur herrum, annars vegar ráðherra Alþýðuflokksins að því er snerti efnahagssamvinnu Evrópu og samskiptin við alþjóðastofnanirnar í Washington, en hins vegar ráðherra Alþýðubandalagsins að því er snerti austur-viðskiptin og önnur störf ráðuneytisins. Báðir urðu þeir að fallast á fjarveru Þórhalls og koma sér saman um staðgengil hans. Það leit ekki vænlega út í fyrstu, en Þórhallur var ráðagóður sem fyrri daginn og kom því til leiðar að ráðherrarnir sættust á að ég tæki við starfinu þau ár sem hann yrði fjarverandi. Þetta reyndist þegar til kom hið gagnlegasta fyrirkomulag, þar sem ég fékk góða aðstöðu til að undirbúa og framkvæma þær umbreytingar sem framundan voru og síðar gengu undir nafni viðreisnar, en Þórhallur gat í starfi sínu vestan hafs lagt þessum sömu umbreytingum lið innan Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem mestan hlut átti í fjárhagslegum stuðningi við þær og ráðgjöf um það hvernig þeim yrði hagað. Áður en Þórhallur hélt á brott innti ég hann eftir góðum ráðum í því nýja starfi sem ég hafði tekið að mér en vissi lítil skil á. Svarið var stutt og laggott: "Þú skalt bara tala við hann Gunnlaug Briem," en Gunnlaugur var Nestor ráðuneytisstjóranna, sem þegar þetta var nutu óskoraðs trausts ráðherra úr hvaða stjórnmálaflokki sem var og enginn efaðist um að þjónuðu öllum ráðherrum af sömu trúmennskunni.

Þegar Þórhallur sneri aftur frá Washington árið 1962 urðu viðskiptamálin í Vestur-Evrópu aðalviðfangsefni hans, og þá umfram allt undirbúningurinn að inngöngu Íslands í Fríverslunarbandalag Evrópu, EFTA, og sá samningur við Sameiginlega markaðinn sem henni fylgdi. Það verkefni var að líkindum það mikilvægasta sem hann nokkru sinni glímdi við, en það var um leið framhald þess sem á undan var gengið og upphaf þess sem nú er orðið.

Ég á Þórhalli Ásgeirssyni fleira gott upp að inna en flestum samferðamanna minna. Frá því við kynntumst fyrst í skóla auðsýndi hann mér velvild og vináttu. Hann hikaði ekki við að beina til mín verkefnum og sýna mér traust í pólitísku ölduróti fyrstu áranna eftir styrjöldina, og hann valdi mig sem staðgengil sinn þegar hann hvarf af landi brott. Síðar störfuðum við saman að því áhugamáli okkar beggja að efla menningartengsl við Bandaríkin og greiða götu íslenskra námsmanna þar í landi. Lengi fram eftir ævi áttum við saman góðar og skemmtilegar stundir ásamt eiginkonu hans, Lillý, sem hann hafði verið svo heppinn að kynnast þegar hann starfaði í Washington á styrjaldarárunum. Til hennar og barna þeirra fylgja hugheilar kveðjur með þessum orðum.

Jónas H. Haralz.

Það var mér til láns á lífsleiðinni að við Þórhallur Ásgeirsson urðum nágrannar og vinir á skólaárum mínum. Það er bjart yfir minningum þess tíma að þau glæsilegu hjón, Þórhallur og Lilly, og þeirra fallegu börn urðu nágrannar okkar í Vesturbænum. Hann hafði þá tekið við ráðuneytisstjórastarfi en Þórhallur vildi hafa auga með mér þegar háskólanám tók við vestanhafs.

Á þeim árum bar Þórhallur meginábyrgð sem embættismaður á þátttöku Íslands í efnahagssamvinnunni í Vestur-Evrópu. Þeim málum hafði ég kynnst í háskólanámi í Boston og með fulltingi Þórhalls fékk ég stöðu í Efnahagssamvinnustofnun Evrópu í París. Þar með var hafinn langur starfsferill en ég varð síðar náinn samstarfsmaður Þórhalls. Tvívegis varð það um skeið í viðskiptaráðuneytinu en þó að ég væri lengst af erlendis en hann heima var samband okkar alltaf náið. Ég er því til frásagnar um það mikla starfsframlag sem Þórhallur lét eftir sig í Evrópumálum sem var þó síður en svo það eina sem hann tókst á við.

Eitt helsta stefnumál Viðreisnarstjórnarinnar var aðild að EFTA. Það mál var erfitt í meðförum og leystist ekki fyrr en í lok sjöunda áratugarins. Það var loks 1968 að samningar gátu hafist en þá hafði málstaður okkar um langa hríð verið kynntur og þar brast Þórhall hvorki þolinmæði eða bjartsýni. Aðildarsamningur við EFTA hafði það aukna gildi að vera fyrirmynd fríverslunarsamnings við Efnahagsbandalagið en þá voru aftur erfiðleikatímar vegna fiskveiðideilna. Enginn átti þar meiri þátt að málum en Þórhallur.

Hér er þess minnst að Þórhallur Ásgeirsson átti drjúgan þátt í því að hornsteinar eru lagðir að því gifturíka samstarfi sem þátttaka í Evrópska efnahagssvæðinu felur í sér.

Sé Þórhalls minnst skal því ekki gleymt að þar fór sérstakt prúðmenni og sá góði drengur sem orðin integer vitae scelerisque purus úr menntaskólasöngnum eiga best við. Við Elsa kveðjum þig nú, góði vinur, og þökkum þér þína miklu vináttu og tryggð. Lilly og fjölskyldunni flytjum við innilegustu samúðarkveðjur.

Einar Benediktsson.

Við fregnina um andlát Þórhalls Ásgeirssonar rifjaðist upp í huga mínum margt frá okkar góðu kynnum og margvíslegu samstarfi um langt árabil.

Fundum okkar Þórhalls bar fyrst saman árið 1964 þegar ég kom til starfa í Efnahagsstofnun, nýkominn heim til Íslands að loknu háskólanámi í Stokkhólmi. Ég var svo heppinn á fyrstu misserunum sem ég var þar við störf að hitta Þórhall á fundum með forstjóra Efnahagsstofnunar, Jónasi H. Haralz, þar sem rædd voru efnahagsáhrif hugsanlegrar aðildar Íslands að Fríverslunarsamtökum Evrópu (EFTA), en Þórhallur var þá önnum kafinn við undirbúning aðildarsamninga. Mér er enn í minni hversu gott vald Þórhallur hafði á þessu viðfangsefni með hógværð sinni og hyggindum. Leiðir okkar lágu víða saman upp frá því.

Við sátum saman í stjórn Norræna fjárfestingarbankans (NIB) sem fulltrúar Íslands frá stofnun bankans árið 1976 allt til ársins 1987. Á þessum ellefu árum tókust með okkur góð kynni og vinátta. Þórhallur var vel kynntur og virtur í norrænu samstarfi á sviði viðskipta- og efnahagsmála og naut þess vel í farsælum störfum í stjórn NIB.

Með honum var gott að starfa. Það var einkar ánægjulegt að sjá NIB - sem við höfðum báðir tekið þátt í að koma á fót allt frá undirbúningsstigi árið 1975 - vaxa og dafna eins og raun ber vitni allt til þessa dags. Þórhallur var sérstaklega áhugasamur um það að Íslendingar hefðu sem mest gagn af aðild sinni að NIB. Sú hefur orðið raunin að bankinn hefur átt drjúgan þátt í fjármögnun margra þjóðþrifaframkvæmda hér á landi á þeim þrjátíu árum sem liðin eru frá stofnun hans.

Fyrir utan gott samstarf við verkefni stjórnar NIB var ekki síður gott að eiga Þórhall að ferðafélaga. Hann var jafnvandvirkur og stundvís á ferðalögum sem í öðrum daglegum störfum. Það var engin hætta á því að hann eða þeir sem með honum voru í för misstu af flugvélum í millilandaferðum fengi hann nokkru um ráðið.

Samstarf okkar Þórhalls varð enn nánara síðustu starfsár hans sem ráðuneytisstjóri í viðskiptaráðuneytinu. Þegar ég tók við starfi viðskiptaráðherra í júlí 1987 þótti mér gott að vita að dagleg stjórn og rekstur ráðuneytisins var í öruggum höndum hans.

Hann hafði þá gegnt starfi ráðuneytisstjóra í fjóra áratugi ef frá eru talin fjögur ár, 1958-1962, er hann var fulltrúi Norðurlanda í stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Washington. Óvenjumikil starfsreynsla og víðtæk þekking Þórhalls á íslenskum og alþjóðlegum viðskiptamálum gerðu hann að einstaklega öflugum fulltrúa Íslands á alþjóðavettvangi. Þetta kom ekki síst í ljós í samningunum um aðild Íslands að EFTA á síðari helmingi sjöunda áratugarins og síðar í starfinu innan Fríverslunarsamtakanna.

Þau fjörutíu ár sem Þórhallur var ráðuneytisstjóri komu og fóru ekki færri en 12 viðskiptaráðherrar í 16 ríkisstjórnum og stóðu sumir stutt við. Hann varð þannig fulltrúi fyrir samhengið í framvindu viðskiptamála á Íslandi eftir stríð. Þórhallur var af þeirri kynslóð sem færði Ísland inn í nútímann að lokinni seinni heimsstyrjöld. Honum fylgdi andblær nýrra tíma - nýrra sjónarmiða - þegar hann tók við starfi sem ráðuneytisstjóri í viðskiptaráðuneytinu í ársbyrjun 1948 eftir störf í utanríkisþjónustu hins unga lýðveldis og háskólanám í Svíþjóð og Bandaríkjunum. Hann skildi vel að Íslandi vegnar best þegar það tekur virkan þátt í alþjóðlegu samstarfi - að það er einmitt slík þátttaka sem skilgreinir sjálfstæðið, gerir þjóðina gilda meðal þjóða.

Þórhallur var mikill mannkostamaður. Heilindi og heiðarleiki einkenndi dagfar hans allt. Gætni hans og hyggindi gerðu hann að fyrirmyndarembættismanni. Það er mikils virði að hafa kynnst og starfað með slíkum drengskaparmanni.

Þórhallur var kvæntur hinni ágætustu konu, Lillý Knudsen. Þau hjón voru höfðingjar heim að sækja og saman voru þau glæsilegir fulltrúar Íslands. Til Lillýjar og fjölskyldunnar allrar leitar nú hugurinn með innilegri samúð.

Guð blessi minningu Þórhalls Ásgeirssonar.

Jón Sigurðsson.

Þórhallur Ásgeirsson var um marga hluti yfirburðamaður sem skilur eftir sig óvenju árangursríkt ævistarf. Hann sótti sér háskólamenntun til Svíþjóðar og Bandaríkjanna og hóf að því loknu árið 1942 störf við nýstofnað sendiráð konungsríkisins Íslands í Washington. Þar þurfti íslensk utanríkisþjónusta að leysa úr fjölda erfiðra vandamála sem upp komu í þeim ófriði sem þá ríkti og tryggja stöðu lands og þjóðar að honum loknum.

Hann flutti svo til starfa í utanríkisráðuneytinu í Reykjavík á árinu 1945 og starfaði þar þangað til hann hóf störf í viðskiptaráðuneytinu í ársbyrjun 1948. Gegndi hann þar í fyrstu starfi skrifstofustjóra en tók síðan við stöðu ráðuneytisstjóra sem hann sinnti þar til hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Um fjögurra ára skeið gegndi hann stjórnarsetu í Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í leyfi frá störfum sínum í ráðuneytinu sem leiðir hugann að því að faðir hans, Ásgeir Ásgeirsson, var einn af þremur fulltrúum hins nýstofnaða íslenska lýðveldis á Bretton Woods-ráðstefnunni í júlí 1944, þegar grunnurinn var lagður að stofnun Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Þórhalls verður lengi minnst fyrir embættisstörf sín, þar sem hann var oft í lykilhlutverki við lausn erfiðra viðfangsefna. Þar má nefna opinberar efnahagsráðstafanir í hinum margvíslegu þrengingum þjóðarbúsins á fyrstu áratugunum eftir stríðslokin og hið mikla framlag hans til þess að tryggja utanríkisviðskipti þjóðarinnar, ekki síst þegar algjörlega tók fyrir útflutning á ísvörðum fiski til Bretlands í tilefni af útfærslu íslensku fiskveiðilögsögunnar í 4 sjómílur. Var stjórnsýslurammi utanríkisviðskipta stöðugt viðfangsefni hans um áratuga skeið í nánu samstarfi viðskipta- og utanríkisráðuneytanna. Ekki er rými til að rekja það hér, en ágætlega er gerð grein fyrir því mikla starfi og árangri þess í ritverki Péturs J. Thorsteinssonar um utanríkisþjónustu Íslands og utanríkismál. Þórhallur var jafnframt í lykilhlutverki í samningagerðinni um inngöngu Íslands í EFTA og við gerð viðskiptasamnings að því loknu við Efnahagsbandalag Evrópu.

Þórhallur hafði mjög fágaða framkomu, rökfestu og gætni, sem oft reyndi á í alþjóðlegu samstarfi og skilaði miklum árangri fyrir íslenska hagsmuni. Hann ávann sér óvenju mikillar virðingar hjá þeim sem við hann áttu samskipti. Í allri umgengni var hann þægilegur og nákvæmur. Hann naut jafnan mikils trausts hjá þeim ráðherrum sem fóru með viðskiptamál á hverjum tíma og nutu í ríkum mæli ráðgjafar hans og reynslu. Hann var einnig vinsæll hjá starfsliði ráðuneytisins og öðru samstarfsfólki fyrir mannkosti sína og forystuhæfileika.

Þegar Þórhallur lét af störfum, sjötugur að aldri, hafði hann enn nær óskerta starfsorku og hélt hann um nokkurra ára skeið áfram stjórnarsetu í Norræna fjárfestingarbankanum og var þar áhrifamaður. Hann hélt einnig áfram setu sinni í Hrafnseyrarnefnd sem hann taldi til ánægjulegustu verka sinna og sér vera heiður að.

Um leið og við hjónin sendum Lillý og fjölskyldu þeirra Þórhalls okkar innilegustu samúðarkveðjur biðjum við Drottin að blessa minningu Þórhalls Ásgeirssonar.

Björn Friðfinnsson.

Þórhallur Ásgeirsson, ráðuneytisstjóri viðskiptaráðuneytisins, var einn af embættismönnum aldarinnar, einkum sökum starfa við aðild Íslands að Fríverslunarsamtökum Evrópu (EFTA) 1970 og gerð fríverslunarsamningsins við Efnahagsbandalag Evrópu 1972. Þar sýndi hann dugnað, baráttugleði, útsjónarsemi og hagkvæmni í þágu íslensku þjóðarinnar og laðaði fram lausnir, jafnvel frá vinum sínum erlendis.

Of langt er að telja upp önnur prýðisstörf ráðuneytisstjórans. Annar góður maður, Hans G. Andersen þjóðréttarfræðingur, lýsti ferli hans eitt sinn við mig í síma með tveimur orðum: "Ekkert apaspil."

Samstarf er þakkað og samúð vottuð eftirlifandi eiginkonu, Lilly, og ættingjum. Það sakna margir góðs drengs.

Jón Ögmundur Þormóðsson.

Kveðja frá Lionsklúbbnum Ægi

Látinn er mætur félagi og einlægur Lionsmaður, Þórhallur Ásgeirsson.

Honum var gott að kynnast. Ég minnist þess fyrir mörgum árum, þegar við fylgdumst að og seldum Sólheimakerti niðri á Lækjartorgi og áttum saman góðar stundir. Þórhallur var maður hógvær og lítillátur og hafði fágaða framkomu. Hann var mikilsmetinn í klúbbnum, gegndi ýmsum embættum og lét að sér kveða. Ægisfélagi varð Þórhallur árið 1965. Á þeim árum miðaðist allt starfið við að styðja við bakið á Sesselju á Sólheimum. Þá var viðbyggingin við gamla húsið aðalverkefnið og pöntuð höfðu verið fullkomnustu tæki, sem við átti í eldhúsið. Aðflutningsgjöld af tækjum þessum voru æði há og þá veltu félagar því fyrir sér, hvort unnt væri að fá þau felld niður. Það var þá sem Þórhallur tók málið að sér og lagði á ráðin um það, hvernig leita skyldi liðsinnis ráðamanna og málið leystist á farsælan hátt. Oft var Þórhallur til þess kvaddur að fræða félaga um mál, sem efst voru á baugi. Hann flutti erindi um Sameinuðu þjóðirnar árið 1967 og um EFTA ári síðar. Seinna sagði hann á skemmtilegan hátt frá ferð í austurveg til Tékkóslavakíu og Póllands.

Þegar klúbbfélagar fóru í ferðalag til Rússlands í júní árið 1989 var gott að eiga Þórhall að, en hann lagði á ráðin um það, hvert skyldi fara og hvað skyldi skoða. Hann var manna kunnugastur rússneskum staðháttum vegna tíðra viðskiptasamningaferða fyrir íslensk stjórnvöld.

Þeim fer nú fækkandi félögunum í Ægi, sem í öndverðu, með öflugu og kraftmiklu starfi björguðu Sesselju Sigmundsdóttir á Sólheimum frá því að gefast upp, eins og hún sagði síðar. Þórhallur Ásgeirsson var einn af þeim.

Góður maður er genginn. Við félagarnir þökkum samveruna og góð kynni og biðjum honum blessunar á ferðinni yfir móðuna miklu.

Hugheilar samúðarkveðjur sendum við Lilly og fjölskyldunni.

F.h. Lionsklúbbsins Ægis

Þórhallur Arason.

Í kosningunum 1978 höfðum við alþýðubandalagsmenn fengið 14 þingmenn og hlutum því að verða aðilar að ríkisstjórn. Enda myndaði Lúðvík Jósepsson formaður Alþýðubandalagsins ríkisstjórnina en Ólafur Jóhannesson formaður Framsóknarflokksins varð samt forsætisráðherra. Kalda stríðið var enn á sínum stað. Allt árið höfðu staðið átök milli ríkisstjórnarinnar fráfarandi og verkalýðshreyfingarinnar. Við lofuðum samningunum í gildi og tókst að standa við það. Allt í einu er undirritaður kominn inn í stjórnarráðið; hafði eiginlega aldrei komið þar áður. Ráðuneytisstjórinn í viðskiptaráðuneytinu var fjarri í viðskiptasamningum í austurvegi; hann gerði tugi, kannski hundruð slíkra samninga. Ráðuneytisstjórinn var Þórhallur Ásgeirsson. Þegar hann frétti, mig minnir til Póllands, hver væri að setjast í ráðherrastólinn í viðskiptaráðuneytinu ákvað hann að flýta för sinni til Íslands. Hann kom heim, sá þennan síðhærða mjóa unga mann að vestan og við sigruðum eiginlega hvor annan. Urðum vinir. Nú kveð ég hann og þakka samfylgdina. Þórhallur Ásgeirsson varð fyrsti ráðuneytisstjóri minn - þeir urðu fimm. Þórhallur var fágætur maður, vandaður embættismaður, skemmtilegur í samveru með glöggar skoðanir á öllu. Ég hafði reyndar afdráttarlausar skoðanir líka; nestaður málefnasamningi stjórnarflokkanna og pólitík Alþýðubandalagsins þarna haustið 1978. "Röð efnahagsráðstafana eftir helgi" stóð á forsíðu Þjóðviljans þegar ríkisstjórnin kom til starfa. Í þeirri röð og í því er síðar varð í vinstri stjórninni var margt á annan veg en Þórhallur hefði getað hugsað sér. Þar stóð til dæmis í málefnasamningnum að leggja ætti aðlögunargjald á innfluttar iðnaðarvörur þrátt fyrir EFTA samninginn. Það leist Þórhalli ekki á og við því var ekki að búast. Við töluðum um málið og urðum ekki sammála; aðlögunargjald var engu að síður lagt á innfluttar iðnaðarvörur eftir glæsilega för skörungsins Inga R. Helgasonar til höfuðborga EFTA ríkjanna sem samþykktu aðlögunargjaldið. Meðan það var í bígerð fór Þórhallur vinur minn í orlof í fáaeina daga, en hann átti þá inni orlof svo enst hefði til langrar fjarveru. Hann vissi hvert ég ætlaði en bað orlofs um að fá að vera fjarri á meðan. Það var veitt; við brostum báðir. Þrátt fyrir þennan skoðanaágreining og reyndar um fleiri mál héldum við þétt saman þennan tíma sem ég var í viðskiptaráðuneytinu.

Ég tel mig hafa verið heppinn að byrja minn ráðherraferil með Þórhalli; meðan ég vann hjá Þórhalli, sagði ég stundum og segi enn, í gamni og alvöru. Hjá honum lærðist margt sem kom sér vel í störfum mínum, einnig nú er ég starfa á Hafnarslóð. Ég hef alltaf haft grun um reyndar að Þórhallur hafi litið á það sem verkefni sitt að kenna þessum unga manni eitt og annað. Mér fannst gott líka að geta fært honum rökin fyrir okkar stefnu í löngum en gjörsamlega reiðilausum rökræðum. Þannig held ég að við höfum lært dálítið hvor á annan og hvor af öðrum.

Ekki er langt síðan sænskur embættismaður spurði mig um Þórhall; hann minntist Þórhalls frá viðskiptastjórafundunum norrænu - ætti kannski að taka þá upp aftur? Þar var Þórhallur áratugum saman við góðan orðstír. Þórhallur gerði eins og í upphafi var nefnt viðskiptasamninga við Austur- Evrópuríki í tugavís. Þeir samningar voru ekki fundnir upp af mér eða mínum pólitísku samherjum heldur var samstaða um þá á Íslandi. Þórhallur kenndi mér á þau samtöl og honum fannst ég stundum fara óþarflega gassalega í orði í ræðum mínum og greinum andspænis þeim ríkjum sem við vorum að skipta við í Austur-Evrópu. Þegar stjórnin var mynduð haustið 1978, 1. september, voru þeir einmitt í heimsókn leiðtogar tékkóslóvakísku stjórnarandstöðunnar, Goldstücker og Heijzlar til að minnast ofbeldisins sovésku bryndrekanna gegn lýðræðinu í Prag 10 árum fyrr. Þau mál ræddum við líka oft við Þórhallur.

Ég vil nú að leiðarlokum þakka fyrir þennan tíma sem við Þórhallur áttum saman; hann varð mér lærdómsríkur. Þessi fáu orð eiga að tjá það þakklæti um leið og ég færi eftirlifandi eiginkonu hans og börnum og aðstandendum öllum samúðarkveðjur.

Þórhallur Ásgeirsson var vandaður embættismaður sem kunni að taka öllu því sem að höndum bar; líka ráðherrum sem hann átti ekki beint von á.

Hann hafði lag á að breyta vanda í vináttu.

Það er ekki öllum gefið.

Svavar Gestsson.

augardaginn 31. desember, 1988 - Minningargreinar

Afmæliskveðja: Þórhallur Ásgeirsson ráðuneytisstjóri Sú kynslóð menntamanna,


Afmæliskveðja: Þórhallur Ásgeirsson ráðuneytisstjóri Sú kynslóð menntamanna, sem lauk stúdentsprófi á árunum fyrir seinni heimsstyrjöld, átti eftir að skila miklu verki í samskiptum okkar við önnur lönd. Þórhallur Ás geirsson, ráðuneytisstjóri, er þar í fremstu sveit, Háskólanámi, sem hann hóf í Svíþjóð, varð að venda til Bandaríkjanna vegna styrjaldarinnar. Þá þegar að afloknu námi með MA-gráðu frá háskólanum í Minnesota réðst Þórhallur til starfa í utanríkisþjónustunni og var fulltrúi við sendiráðið í Washington til stríðsloka. Var það upphaf frækilegs embættisferils, en að vestan kom Þórhallur kvæntur Lillý, norskrar ættar, sem búin hefur fjölskyldunni hið mesta ágætis- og fyr irmyndarheimili, jafnframt því að reka rausnarbú fyrir gesti og gangandi.

Giftusamlega réðst það, að eftir tveggja ára starf í utanríkisráðuneytinu varð Þórhallur Ásgeirsson ráðuneytisstjóri í viðskiptaráðuneytinu, eða skrifstofustjóri eins og það hét þá. Því mikilvæga starfi átti hann eftir að gegna í röska fjóra áratugi. Á þessu ráðuneyti, sem jafnan var fámennt að starfsliði, hvíldu verkefni með fádæmum þýðingarmikil. Nægir þar að minna á efnahags- og viðskiptasamvinnu tengda Marshall-aðstoðinni, austur-viðskiptin og upphaf þátttöku okkar í fríverslun með aðild að EFTA og gerð fríverslunarsamnings við Evrópubandalagið. Var í senn um að ræða mikla vinnu heimafyrir og svo ekki síður í samvinnuvið sendiráð Íslands. Í verkefnunum hefur Þórhallur verið hinn leiðandi maður og notið trausts ráðherra og allra samstarfsmanna en það er orðinn stór hópur. Önnur mál á starfsvettvangi viðskiptaráðuneytisins, bankamálin og útflutningsleyfin, svo dæmi séu nefnd, hafa e.t.v. ekki verið eins afdrifarík fyrir þjóðarhag og hin fyrrgreindu, en í þeim hefur vafalaust oft reynt jafnmikið á góða embættismennsku ráðuneytisstjórans og í stórum málunum.

Vináttu Þórhalls Ásgeirssonar hef ég notið frá æskuárum þá er ég og mitt fólk urðum nágrannar þeirra Lillý og barnanna á Marargötu. Systrum mínum þótti, að ég man, mesti fengur í því að stija þar yfir börnunum, eitt og eitt kvöld. Frá móður minni fékk ég sendar vinsamlegar leiðbeiningar Þórhalls um háskólanám mitt í Bandaríkjunum og þegar því lauk atbeina hans um mín fyrstu störf, heima og er lendis. Var ég síðan tengdur Þórhalli í starfi í ráðuneytisvinnu í Reykjavík eða á sendiráðunum í París, Genf, London og Brussel þartil í fyrra að forsvar viðskiptamála færðist aftur í utanríkisráðuneytið. Ég ætla að ég tali af nægri persónulegri reynslu til að mega fullyrða, að enginn annar hefði þar sýnt meiri dugnað og ósérhlífni eða yfirleitt náð lengra í starfi.

Þá er ég og þakklátur þeim vinar- eða góðkunningjatengslum, semég eignaðist við þau foreldra Þórhalls, forseta Íslands, hr. Ásgeir Ásgeirsson, og frú Dóru Þórhallsdóttur, og einnig systur hans og þeirra ágætu maka og svo marga úr stórum hópi afkomenda þeirra systkinanna. Umfam allt eru okkur Elsu þó í huga góðar samverustundir með Þóhalli og Lillý, heima hjá þeim á Einimel og hér og þar erlendis, en þá ekki hvað síst nú í seinni tíð í golfklúbbi Ness. Maður hefði betur fylgt þínum ráðum, Þórhallur, og byrjað fyrr í golfinu, en betra er þó seint en aldrei!

Bestu kveðjur á sjötugsafmælinu.

Einar Benediktsson