Geir Reginn Jóhannesson
Föstudaginn 26. janúar, 2007 - Minningargreinar
Geir Reginn Jóhannesson
Geir Reginn Jóhannesson fæddist í Reykjavík 26. mars 1949. Hann lést á heimili sínu 16. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Jóhannes Geir Jónsson listmálari, f. á Sauðárkróki 24. júní 1927, d. 29. júní 2003, og Ásta Sigurðardóttir rithöfundur, f.
|
| |
| |
Barnsmóðir Geirs er Greta Björg Úlfsdóttir. Þeirra barn er Eysteinn, f. 26. desember 1972.
Sambýliskona Eysteins er Sólveig María Jörgensen, f. 14.8. 1962.
Geir ólst að mestu upp á Þinghólsbrautinni í Kópavogi hjá ömmu sinni, Þórönnu Guðmundsdóttur. Hann lauk stúdentsprófi 1969 frá MR og stundaði síðan nám í rafmagnsverkfræði við Háskóla Íslands. Þaðan lá leiðin til háskólans í Lundi í Svíþjóð í áframhaldandi nám í rafmagnsverkfræði og tölvunarfræðum.
Geir vann lengst af sem verktaki í tölvuforritun fyrir ýmsar stofnanir og fyrirtæki, s.s. Símann, Apótekarafélagið, Sparisjóð vélstjóra o.fl.
Útför Geirs verður gerð frá Fossvogskapellu í dag og hefst athöfnin klukkan 13.
elskaðu hina
dauðlegu mynd
hins ódauðlega
(Inger Christensen.
Þýð. Valdimar Tómasson.)
Það sannaðist á Geir R. Jóhannessyni að ekki fara alltaf saman gæfa og gjörvileiki eða lífslán og leiftrandi gáfur. Að Geir stóðu sterkir stofnar. Foreldrar hans voru Jóhannes Geir listmálari og hin kunna skáldkona Ásta Sigurðardóttir. Drengurinn ólst upp hjá móðurömmu sinni. Sem barn var hann jafnan stilltur vel, eilítið fullorðinslegur. Snemma nokkur einfari. Sóttist nám með ágætum og hélt á sínum tíma til verkfræðináms í Lundi.
Mín trú er sú að Geir hafi snemma og löngum upplifað mikla höfnun og söknuð, sem hann byrgði bak við ytri brynju, karlmannlegt fas og hvatskeytleik. Slík persónugerð auðveldar ekki náin tengsl eða mannleg samskipti í hörðum heimi.
Er Geir kom frá Lundi sneri hann sér einkum að tölvuvinnu, forritun o.þ.h. og var meðal brautryðjenda á þeim vettvangi. Starfaði við þetta lengi með góðum árangri. Er tölvubylgjan mikla tók að rísa hygg ég að hann hafi ekki haft varann á og misst að nokkru af tækniþróunarlestinni sem geystist hjá. Fjármálagreind hafði hann einnig í óheppilega litlum mæli.
Hin síðari ár gekk honum ver að fá starf við sitt hæfi og harðnaði þá á dalnum. Allra síðustu árin voru ættfræðirannsóknir meðal þess er hann lagði lið og einnig vann hann að myndatöku og skráningu á málverkum og teikningum föður síns.
Sú mynd af Geir sem lifir í minni mínu er af næmum, viðkvæmum, listrænum og örlátum manni sem hafði mikla ánægju af og þörf fyrir félagsskap og samræður. Við leiðarlok birtist heildarmyndin.
Magnús Skúlason.
Stúdentsárin eru sögð æskuglöð í ljóði, og víst var það svo á Gamla garði við upphaf áttunda áratugar aldarinnar sem leið – og stundum var raunar lítt af setningi slegið. Á Garði safnaðist saman ungt fólk víðs vegar að til að stunda nám við Háskóla Íslands, lífsgleði var mikil, Glaumbær skammt undan, og margir að koma til borgarinnar í fyrsta sinn til dvalar og voru eins og kálfar á vori fyrsta misserið – jafnvel lengur. Það lætur að líkum að menn bundust vináttuböndum í svo nánu sambýli sem var á Garði.
Geir Reginn Jóhannesson var einn í þessum hópi og raunar sá sem allir veittu eftirtekt þar sem hann fór, því að hann var sérstakur á marga lund. Hann var hávaxinn, með eldrautt hár sem hann lét skera með sérstökum hætti, rauðskeggjaður með stór græn augu og miklar augnabrýn, fremur smámynntur og þó djarfmæltur og óvæginn í orðum, gat verið þóttafullur í framgöngu. Við bjuggum á sama gangi í þrjá vetur og varð vel til vina, sátum oft á síðkvöldum að spjalli, litum stundum inn til Jóhannesar listmálara föður hans sem þá bjó í Þingholtum og var ævinlega spjallað um gamla tíma í Skagafirði þar sem Jóhannes ólst upp og var mikill sagnabrunnur; oftar en ekki var gull í glasi og létt gangan heim.
Geir Reginn var einfari og gekk ævinlega eigin götur og oft um torleiði. Hann var eldskarpur námsmaður, en stundaði skólann illa og tók þó góð próf um síðir. Hann var mjög viðkvæmur í lund, ör og reiddist oft ákaflega, var þá óvæginn og afdráttarlaus í athöfnum, sem oft kom honum illa, stundum deilugjarn og afar langrækinn. Mörgum mun hafa sviðið undan orðum hans og vissulega tók hann oft nærri sér ádeilur sem hann varð fyrir; ræddi það þó lítt eða ekki en byrgði með sér og mundi. Hann var veitull vinum sínum og skemmtilegur viðræðu í góðu tómi. Allur lífsmáti hans var fjarri meðalhófi. Hann keypti sér mótorhjól fremur en íbúð og olli það sundurþykkju með þeim Jóhannesi. Hann var ölkær í meira lagi og sér til skaða. Hann vann lengi við margvísleg tölvufræði, afburðamaður á því sviði, en afkoman var ei að síður gloppótt vegna fjarveru; var yfirleitt á eigin vegum að starfi og umhverfi hans að jafnaði víðs fjarri borgaralegri kurt. "Lífsins eru leiðir strangar" orti Grímur Thomsen, "lítið er hér um frið og ró".
Að loknu námi fetaði hver Garðbúi sína slóð út í margvíslega kima samfélagsins, en við höfum alltaf vitað hver af öðrum, og jafnan er bros á vörum þegar menn hittast, því að flestir þessara gömlu daga liðu með gleðibragði. Nú er hins vegar skarð fyrir skildi þegar Geir Reginn er allur og veröldin snauðari. Ég kveð hann með ljóði Hannesar Péturssonar, Undir vetrarhimni:
vilji Höfundarins –
tilgangur
sem oss tekst aldrei að skilja
að hver maður sofni
svefninum endalausa
hverfi til þagnarinnar
þaðan sem hann kom?
Hví skyldi vera merkingarlaust
að mynnast út í þögnina
þá dularfullu þögn
sem drýpur af stjörnunum?
Ástvinum hans sendi ég samúðarkveðju.
Sölvi Sveinsson.
Um miðjan sjöunda áratuginn flutti ég í Kópavoginn og tóku innfæddir mér vel. Á meðal þeirra var einn hávaxinn, rauðhærður með liðað hár og mikill spekúlant. Áhugamálin sköruðust, vélar, tól og tæki. Geir bjó hjá ömmu sinni og Oddnýju móðursystur á Þinghólsbraut. Á þeim árum var talað, hugsað og þeyst um á skellinöðrum, lengri eða skemmri vegalengdir, rykugir svo aðeins sást í augun. Geir átti þá rauðan fjögurra gíra fák, sá komst hraðast niður Hraðametsbrekkuna undan vindi. Enn vita aðeins fáir úr innsta hring hvar Hraðametsbrekkan er.
Þegar bílprófsaldri var náð var draumur allra að aka bíl sem oftast og sem lengst. Á þeim tíma átti Oddný örfárra ára gamlan rauðan Ford, sem var "aðeins" sex gata. Við lestur erlendra tímarita hafði Geir séð grein í bandarísku bílablaði um hvernig hægt væri að betrumbæta snerpu bílsins með því að setja í skottið túrbínu, sem gengi á hvers kyns olíum, þar með töldu innlenda orkugjafanum hvallýsi, sem kostaði þá minna en ekki neitt. Ég býst við að fjármagnsskortur, sem þá hét blankheit, hafi orðið til að þessi áform voru lögð til hliðar. Þess í stað fjárfesti Geir í svörtu tveggja strokka mótorhjóli og viðeigandi ökuleyfi og fór oft á því í Menntaskólann svo eftir var tekið.Námið í menntaskóla gekk vel, einkum stærðfræðin, og leitaði stærðfræðikennarinn ævinlega til Geirs þegar skólataflan var fullskrifuð af stærðfræðitáknum en eitthvað vantaði upp á til að dæmið gengi upp. Ekki var Geir lengi að átta sig á villunni, þótt hann væri niðursokkinn við dæmi úr námsefni næstu ára. Á þessum árum var Geir heimagangur hjá mér og í sérstöku uppáhaldi hjá foreldrum mínum. Faðir minn heilsaði honum ævinlega með "hvað segir Barbarossa", og var þá vísað til hins mikla rauða skeggs sem þá huldi andlit Geirs. Svarið var "það er erfitt í Rússlandi". Tengslin héldust ævilangt og hann bauð gömlu konunni sem komin var á elliheimili í bíltúra.
Árin liðu, skólafélagar fóru út um allar jarðir, hver í sitt sérnám, tengslin minnkuðu, en styrktust aftur við stúdentafagnaði.
Að leiðarlokum votta ég syni hans og aðstandendum mína dýpstu samúð.
Hilmar Karlsson.
hugur minn vildi kanna stigu báða.
En lítið er vald þitt, máttur moldarbarna;
mikil er gátan sú, er viltu ráða.
(Magnús Ásgeirsson)
Mér er orða vant, vinur minn Geir Reginn er dáinn um aldur fram. Ég man vel eftir því þegar ég sá hann fyrst, það var þegar við hófum báðir nám í verkfræði við HÍ haustið 1969. Strax í fyrsta tímanum veitti ég athygli sérkennilegum ungum manni á fremsta bekk, rauðhærðum með þykkt yfirvararskegg.
Við kynntumst og höfum þekkst síðan. Við vorum líka samtíða um skeið í Lundi í Svíþjóð, þótt Geir ílentist ekki í verkfræðináminu og hallaðist meira að stærðfræði og forritun.
Heimurinn er lítill og ég komst brátt að því að hann var kominn af fólki, sem ég þekkti. Afi hans var Jón Þ. Björnsson frá Veðramóti, en þaðan er margt hæfileikafólk ættað. Sem barn og unglingur kom ég oft á heimili Jóns og Rósu Stefánsdóttur á Sauðárkróki, en þau voru góðir vinir foreldra minna.
Við áttum það sameiginlegt að hafa áhuga á vísindalegum pælingum um dýpstu rök tilverunnar og ófáar bækurnar um þessi efni og ýmis önnur, sem við skiptumst á í gegnum tíðina. Geir var ótrúlega fundvís á góðar bækur. Og ekki má heldur gleyma vísindaskáldskapnum. Það var nörd í okkur báðum. Og á góðri stund var glösum lyft.
Geir átti ekki fjölskylduláni að fagna. Hann var einmana í æsku og honum bjó í brjósti ákveðin biturð. Hann bjó einn nær alla tíð, eftir að hann komst á fullorðinsár. En hann lætur eftir sig einn son, Eystein, sem var honum kær. Og hann hafði mætur á föður sínum, Jóhannesi Geir, og list hans, þótt samband þeirra á milli væri oftar en ekki fremur stirt. Móður hans, Ástu Sigurðardóttur skáldkonu, kynntist ég ekki, en hún lézt 1971.
Fyrir um tveimur árum áttum við konan mín, Halldóra, góða samferð með Geir frá Reykjavík til Egilsstaða, á samkomu Dánufjelagsins (nafngiftin er Geirs), sem er óformlegur félagsskapur nokkurra vina, sem hófu nám í HÍ fyrir meira en 37 árum.
Það er með söknuði, sem við kveðjum Geir. Hann var um margt sérlundaður. Hann var vinur vina sinna, en hann var ekki allra. Hann var greiðvikinn og örlátur, þegar hann vildi það við hafa. Hann var einnig listrænn í sér, eins og hann átti kyn til, hafði góða kímnigáfu og gat brugðið fyrir sig hagmælsku, ef því var að skipta. Hann hafði afar góðar stærðfræðigáfur, hann sá einhvern veginn dýpra og lengra en aðrir. Mig langar að birta í lokin hluta úr tölvupósti, sem hann sendi mér fyrir nokkrum árum:
"Ekki hef ég samt verið alveg dauður "intellektúellt" þennan tíma, ég hef td stúderað sk. Clifford algebru og analýsu og tel það vera það sem koma skal og verður kennt í stað vektor-stússins sem við lærðum. Fannst þér aldrei neitt skrýtið við td krossmargfeldið? Þetta er bæði fýsískt og matematískt viðrini, trikk sem virkar aðeins í 3 víddum (reyndar 7 líka víst) en samsvörun þess í Clifford-algebru er deginum ljósari í öllum víddum, einfaldleikinn uppmálaður."
Vertu sæll, Geir, og þökk fyrir samfylgdina.
Kristján Bjartmarsson.
Kveðja frá félögum í VI-T, MR 1969
Við í 6.T í MR vorum ákaflega fjölskrúðugur hópur. Bara það að vera að mestu leyti utanbæjarmenn, úr Kópavoginum og Hafnarfirðinum, þjappaði okkur saman á sérstakan hátt svo eftir var tekið. Allir vorum við meira og minna sérstakir en Geir var á ýmsan hátt sérstakastur okkar allra. Hann kom úr Kópavoginum og sótti ættir sínar til listamanna í báðar áttir. Við áttum því alveg eins von á því að hann færi sjálfur inn á þær brautir, en það var þó ekki áberandi, nema það einkenni listamannsins að fara sínar eigin leiðir og láta okkur samferðamönnunum það eftir, að reyna að skilja hann og halda í við hann.Hann var langt á undan okkur flestum er varðaði tölvur og raunvísindi og þess er getið í Faunu ´69 að þá þegar var það hans æðsti draumur að eiga eigin tölvu. Orð sem þá varla fannst í orðabók. Hann var fyrirliði okkar í stærðfræði og leituðu kennarar okkar gjarnan til hans þegar illa gekk; "hvernig gerum við nú þetta aftur, Geir?" eða "hvar gerði ég eiginlega vitleysu í þessu núna, Geir?"
Það kom því ekkert á óvart þegar Geir valdi að leggja stund á verkfræði og stærðfræði við Háskóla Íslands og framhaldsnám í tölvunarfræðum í Svíþjóð.
Í Faunu hinni nýju 1994, kemur fram það markmið Geirs að verða sjötugur. John Lennon sagði einhvern tímann á sínu stutta æviskeiði: "Lífið er eitthvað sem bara gerist meðan þú ert önnum kafinn við að leggja önnur plön."
Þannig vill það nú oft verða og nú hefur fækkað í hópnum okkar þótt plönin hafi verið önnur. Við sem eftir sitjum minnumst Geirs sem sérstaks félaga með framúrskarandi hæfileika og sérstakan stíl. Hann var alla tíð okkar og í hópnum okkar og þótt við hittumst kannski ekki oft síðustu árin, varla nema á stúdentsafmælunum, þá var alltaf eins og við hefðum hist í gær.
Við söknum Geirs og búum ávallt að þeim áhrifum sem nærvera hans hafði á okkur. Jafnframt færum aðstandendum hans okkar bestu kveðjur.
Bekkjarfélagar 6.T, MR 1969.

<< Home